Eva Dögg Sæmundsdóttir valin Skautakona ársins 2018
Eva Dögg Sæmundsdóttir var valin skautakona ársins 2018 af stjórn Skautasambands Íslands. Eva Dögg æfir með Ungmennafélaginu Fjölni undir leiðsögn Gennady Kaskov og keppir hún í Senior Ladies (Fullorðinsflokki kvenna). Er þetta í fyrsta sinn sem hún hlýtur tilnefningu til skautakonu ársins. Eva Dögg hefur sýnt óbilandi þrautseigju, dugnað, eljusemi …
Fríður hópur á International Childrens Games 2019
Íslenskir skautarar verða í liðum ÍBA og ÍBR sem munu verða fulltrúar Akureyrar og Reykjavíkur á International Childrens Winter Games 2019 sem haldnir verða að þessu sinni í Lake Placid í Bandaríkjunum 6. – 11. janúar næstkomandi. Leikarnir voru stofnaðir 1968 í Slóveníu og voru lengi framan af einungis með …
Marta María fulltrúi ÍSS á EYOF
Dagana 9. – 16. febrúar 2019 fer fram Olympíuhátíð Evrópsku æskunnar, e. European Youth Olympic Festival (EYOF). Hátíðin fer að þessu sinni fam í Sarajevo og Austur-Sarajevo, Bosníu-Hersegóvínu. Þangað munu mæta 4.500 manns, þar af 1.600 íþróttamenn, frá 46 löndum. Fulltrúi Skautasambands Íslands á hátíðinni verður Marta María Jóhannsdóttir, en …
Fullveldisdagurinn 2018
Ísland varð frjálst og fullvalda ríki með gildistöku sambandslaganna 1. desember 1918. Það eru 100 ár síðan að við urðum sjálfstæð þjóð með rétti til sjálfsákvörðunartöku í okkar eigin málum, sem er einn merkasti atburður í sögu þjóðarinnar. Á Íslandsmótinu um síðustu helgi ákveðið að hylla fullveldi Íslands með lítilli …
Íslandsmeistaramót ÍSS 2018
Íslandsmeistaramót ÍSS 2018 fór fram í Egilshöll dagana 1. – 2. desember sl. Mótið fór vel fram í heild sinni og var mjög fagmannlega að öllu staðið á mótsstað. Á fyrri keppnisdegi var keppt með stutt prógram og þeim seinni með frjálst prógram. Fyrsti keppnisflokkurinn var Advanced Novice Girls. Þar …
Íslandsmót barna og unglinga 2018
Skautasamband Íslands hélt Íslandsmót barna og unglinga 2018 í Egilshöll laugardaginn 1. desember. Mótið fór vel fram og var skemmtileg og hátíðleg stemmning yfir keppendum og áhorfendum. Skipuleggjendur mótsins stóðu sig vel og má hrósa þeim fyrir mjög vel útfært svæði fyrir verðlaunaafhendingar. Keppni hófst með keppendum úr Chicks og …
Íslandsmót 2018: Streymi / Live Stream
Sýnt verður frá Íslandsmóti ÍSS 2018 í beinni útsendingu á netinu. Tengill til þess að fylgjast með mótinu : Streymi / Live Stream
Íslandsmót 2018: Keppnisröð og opnar æfingar
Búið er að draga í keppnisröð fyrir Íslandsmót ÍSS 2018 “BIKARMÓT 2018: KEPPNISRÖÐ OG OPNAR ÆFINGARBúið er að draga í keppnisröð og birta á vefsíðu ÍSS. Hægt er að nálgast keppnisröð hér: www.iceskate.is/islandsmot-iss Dagskrá fyrir opnar æfingar á föstudag og skipting í hópa er einnig komin inn á netið. Hér er …
Íslandsmót 2018: Dagskrá og keppendalisti
Búið er að birta dagskrá og keppendalista fyrir Íslandsmót ÍSS 2018. Hægt er að sjá allar upplýsingar er varða Íslandsmót hér: www.iceskate.is/islandsmot-iss Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar. Aðalæfingar verða fyrir flokka er keppa til Íslandsmeistaratitils, Advanced novice, Junior og Senior. Aðalæfingar eru hluti Íslandsmeistaramóts og eru keppendur í þessum …