*Á MYNDIRNAR VANTAR BERGLINDI HULD RÍKHARÐSDÓTTUR, EN FAÐIR HENNAR SÓTTI FYRIR HANA VIÐURKENNINGARNAR
Miklar framfarir í verkefninu „Hraðasti skautarinn á Íslandi 2026“
Verkefnið Hraðasti skautarinn á Íslandi 2026, sem er samstarfsverkefni Skautasambands Íslands og Íshokkísambands Íslands, hefur vakið mikla athygli meðal ungra skautara um land allt á tímabilinu.
Krakkar úr öllum deildum allra félaga hafa tekið þátt í tímatökum og sýna niðurstöðurnar glöggt fram á miklar framfarir hjá mörgum þeirra.
Í flokki barna fæddra árið 2014 voru skautaðir einn og þrír hringir, eða 111 og 333 metrar.
Í eins hrings keppninni (111m) deildu tveir keppendur efsta sætinu; Jónas Valdimar Sigurbjörnsson frá Skautafélagi Akureyrar íshokkí og Steinunn Margrét Haraldsdóttir frá Fjölni listskautum, bæði á tímanum 13,33 sekúndur. Karlín Kreiserle varð í öðru sæti á 14,86 sekúndum og Linda Maria Wongmahadthai í því þriðja á 14,95 sekúndum, báðar frá Fjölni listskautum.
Í 333 metra skautun (3 hringir) sama aldurshóps var Víkingur Kári Hrafnsson frá Skautafélagi Akureyrar íshokkí hraðastur á 42,03 sekúndum. Karlín Kreiserle úr Fjölni listskautum varð önnur á 42,69 sekúndum og Elísabet Rós Ægisdóttir, einnig úr Fjölni listskautum, þriðja á 43,60
sekúndum.
Í flokki barna fæddra 2012 og 2013 var Garðar Breki Helgason frá Skautafélagi Akureyrar í íshokkí langhraðastur í 111 metra skautun. Besti tími hans var 12,75 sekúndur og hann átti einnig næstbesta tímann 13,16 sekúndur.
Í öðru sæti varð Ævar Funi Dan Ingólfsson úr Fjölni íshokkí á 13,60 sekúndum og í þriðja sæti Berglind Huld Ríkharðsdóttir frá SA íshokkí á
13,76 sekúndum.
Garðar Breki var einnig efstur í 333 metra skautun aldurshópsins með besta tímann, 36,57 sekúndur, og átti jafnframt næstbesta tímann, 37,08 sekúndur. Berglind Huld Ríkharðsdóttir varð önnur á 39,45 sekúndum og Jökull Jörvi Gunnarsson frá Fjölni íshokkí þriðji á 39,88
sekúndum.
Flestir þátttakendur hafa farið í tvær mælingar yfir veturinn, annars vegar í október–nóvember 2025 og hins vegar í apríl–maí 2026. Niðurstöðurnar sýna að margir keppendur hafa bætt sig verulega og ljóst er að verkefnið hefur notið mikilla vinsælda meðal ungra skautara sem vilja freista þess að verða Hraðasti skautari Íslands árið 2026.
Okkur er þegar farið að hlakka til næsta tímabils og hver verður hraðastur 2027!
