#skatingiceland
Skautasamband Íslands

Heiðursverðlaun ÍSS

Heiðursverðlaun ÍSS

Stjórn ÍSS getur veitt þeim Heiðurmerki ÍSS sem unnið hafa af atorku og dugnaði að vexti og viðgangi skautaíþrótta. Heiðursmerki ÍSS skal veita á Skautaþingi eða við tilefni er stjórn ÍSS ákveður. Stjórn skal vera einróma um veitingu merkisins. Listi yfir Heiðursmerki ÍSS sem hafa verið gefin skal birta í skýrslu á Skautaþingi ár hvert ásamt því að vera aðgengilegur á vefsíðu ÍSS. Mest má veita 4 heiðursmerki á ári.

Heiðursmerki ÍSS eru 3 talsins:

Silfurmerki ÍSS
Merki þetta er merki ÍSS úr silfri og má veita þeim sem hafa unnið ötult og óeigingjarnt starf í þágu skautaíþrótta á Íslandi í 10 ár. Þó getur stjórn ÍSS sæmt menn silfurmerki, ef sérstök ástæða þykir, án þess að 10 ára starfi sé náð. Einnig er hægt að sæma menn silfurmerki eftir langan feril sem landsliðsmaður og/eða landsliðsþjálfari.

Gullmerki ÍSS
Merki þetta er merki ÍSS úr gulli og má veita þeim sem hafa unnið ötult og óeigingjarnt starf í þágu skautaíþrótta á Íslandi í 20 ár. Þó getur stjórn ÍSS sæmt menn gullmerki, ef sérstök ástæða þykir, án þess að 20 ára starfi sé náð.

Heiðursstjarna ÍSS
Merki þetta er merki ÍSS á stjörnu í litum sambandsins með borða í íslensku fánalitunum. Heiðursstjarna ÍSS er æðsta viðurkenning ÍSS og veitist aðeins undir sérstökum kringumstæðum þeim sem unnið hafa skautaíþróttum á Íslandi samfellt gagn megnið af uppvexti og starfsævi sinni. Heiðursstjörnu skal einnig fylgja sérstakt heiðursskjal.

Silfurmerki ÍSS

Elísabet Eyjólfsdóttir

Stjórn afhenti Elísabet Eyjólfsdóttur Silfurmerki ÍSS.
Merkið er veitt þeim sem hafa unnið ötult og óeigingjarnt starf í þágu skautaíþróttarinnar á Íslandi til 10 ára eða lengur.

Skautasamband Íslands (ÍSS) var stofnað árið 1995 og var í upphafi skipt upp í hlaupadeild og hokkídeild. Hlaupadeild Skautasambandsins hafði yfirumsjón með listskautum, auk þess sem gert var ráð fyrir að skautahlaup félli undir þá deild líka. Í nóvember 2004 átti sér stað aðskilnaður með stofnun Íshokkísambands Íslands. Þær greinar sem áður féllu undir listhlaupadeild tilheyrðu Skautasambandinu áfram en íshokkí fluttist yfir til hins nýja landssambands.
Elísabet var kjörin formaður listhlaupadeildar Skautasambandsins árið 1997 og sinnti því starfi fram að aðskilnaði deildanna. Við aðskilnaðinn var Elísabet kjörinn formaður Skautasambands Íslands, og er hún því fyrsti formaður sjálstæðs sambands. Elísabet var formaður ÍSS þangað til árið 2007, samtals í 10 ár.
Undir handleiðslu Elísabetar sótti ÍSS um aðild að Alþjóða skautasambandinu (ISU). Í febrúar árið 2000 fékk ÍSS tímabundna aðild að ISU og árið 2002 fékkst fullgild aðild að ISU. Frá þessum tíma hafa orðið miklar framfarir í listskautum á Íslandi og mikið uppbyggingarstarf átt sér stað. Með aðild að ISU hafa einnig opnast tækifæri til þátttöku erlendis sem áður voru ekki möguleg.
Á starfsárum Elísabetar var unnið mikið að framförum íþróttarinnar og gerður grunnur að verkefnum sem enn eru í vinnslu. Má þar meðal annar nefna Grunnpróf ÍSS og menntun dómara og tæknifólks.
Eftir að Elísabet hætti sem formaður ÍSS hélt hún vinnu sinni fyrir sambandið áfram. Hún sá til að mynda um allt bókhaldið all fram til ársins 2012.
Grasrótin í ungum félögum á uppleið er gríðarlega mikilvæg og sýndi Elísabet það í verki með því að leggja grunn að sterku sambandi.
Elísabet er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju um leið og við þökkum henni fyrir störf sín í gegnum tíðina.

Erlendína Kristjánsson

Erlendína  þjálfaði listskauta bæði í Skautafélagi Reykjavíkur og til margra ára í Skautafélaginu Björninn, sem nú hefur sameinast Fjölni, þar sem að hún var yfirþjálfari.
Á árum sínum sem þjálfari, á öllum getustigum, tók hún þátt í ýmsum alþjóðlegum verkefnum með sínum skauturum og fór í fjölmargar landsliðsferðir með þeim.

Erlendína starfaði fyrir ÍSS til fjölda ára og á árunum 2005 – 2009 sat hún í stjórn sambandsins.
Hún var ein þeirra sem kom á fót þjálfararáði ÍSS og sinnti formennsku í þeirri nefnd.
Hún skipulagði og setti upp þjálfaramenntun ÍSS sem snýr að sérgreinahluta þjálfaranámsins og sá um menntun þjálfara á öllum stigum.

Árið 2017 tók hún að sér mótsstjórn á Norðurlandamótinu sem haldið var í Egilshöll. Þar leiðbeindi hún nýrri stjórn sambandsins og aðstoðaði við skipulag og framkvæmd mótsins í heild sinni. Þetta var jafnframt síðasta verkefnið sem hún sinnti fyrir ÍSS þar sem að á sama tíma greindist hún með krabbamein. Hún barðist hetjulega við krabbameinið í rúmlega tvö ár en því miður sigraði meinið hana í maí 2019.

Það var dóttir Erlendínu, Elizabeth Tinna eða Lizzy eins og við þekkjum hana, sem tók við Silfurmerki ÍSS fyrir hönd móður sinnar. Með viðurkenningunni þakkar ÍSS Erlendínu fyrir störf sín í gegnum tíðna.

Helga Olsen

Helga er menntaður skautaþjálfari og kennari. Hún hefur starfað sem skautaþjálfari alla sína tíð. Hún var ein þeirra sem stóð að stofnun Skautafélagsins Björninn og þar starfaði hún sem þjálfari og yfirþjálfari allra getustiga til fjölda ára.

Árið 2011 stofnaði Helga skautadeild innan Íþróttafélagsins Ösp. Íþróttafélagið Ösp er fjölgreinafélag sem stendur fyrir æfingum með sem fjölbreyttustum hætti þar sem einstaklingarnir ná að njóta sín sem best. Skautadeildin kennir eftir alþjóðlegum áfangamarkmiðum Special Olympics hreyfingarinnar þar sem kappkostað er að bjóða upp á metnaðarfullar, fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar. Hún starfar einnig með Tækninefnd Special Olympic International þar sem nýlega er búið að uppfæra dómarakerfi sem notað er í listskautum. Helga hefur sinnt þróunarvinnu fyrir Inclusive Skating og núna Adaptive Skating þar sem að kappkostað er að skautarar geti keppt á jafningjagrundvelli. Vinnuhóparnir eru alþjóðlegir og hefur tengslamyndum Helgu hjálpað Íslendingum að eiga sérfræðinga í framþróunarhópum á hinum ýmsu sviðum skautaíþrótta fyrir iðkendur með fatlanir.

Samhliða þjálfarastörfum sínum hefur Helga unnið margvíslega vinnu fyrir Skautasamband Íslands. Hún sat í þjálfararáði ÍSS þegar það var fyrst stofnað og kenndi sérgreinahluta þjálfaranáms ÍSS samhliða Erlendínu ásamt því að hún kom að upphaflegri uppsetningu á kennslukerfinu Skautum Regnbogann.

Árið 2016 tók Helga að sér formennsku í Afreksnefnd ÍSS, sem þá hér Valnefnd ÍSS. Hún vann samhliða stjórn að uppbyggingu og eflinu á afreksstarfi sambandsins sem hún sinni enn og hefur haldið fjölda fyrirlestra fyrir iðkendur, þjálfara og forráðamenn. Hún hefur síðstu árin unnið með afreksskauturum ÍSS í árlegum æfingabúðum ÍSS þar sem hún sinnir verkefnavinnu og markmiðasetningu varðandi prógrömmin þeirra.

Núna starfar Helga í þjálfunar- og fræðslunefnd ÍSS. Mikil vinna hefur verið lögð í að skilgreina og efla vinnu nefndarinnar og hefur hún tekið virkan þátt í því.

Síðstu árin hefur Helga séð um alla þjálfaramenntun innan ÍSS, með aðstoð góðs fólks. Námsskrá var gefin út sem setur námið markvisst upp og er það mun aðgengilegra. Allt námsefnið í þjálfaranáminu var uppfært og fært yfir í fjarnám með staðlotum. Helga hefur lagt mikla vinnu í verkefnið og skilar það sér í frábæru námsefni og námsskipulagi sem bæði þátttakendur og ÍSS eru mjög ánægð með.

Helga er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju.
Um leið og við þökkum fyrir störf hennar í gegnum tíðina þá hlökkum við til áframhaldandi samstarfs

Sigrún Inga Mogensen

Sigrún  kemur inn í skautaíþróttina sem foreldri iðkanda. Foreldrar gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki innan íþrótta og með sjálfboðaliðastörfum þeirra gera þau iðkendum kleift að æfa sína íþrótta áhyggjulaus og viss um að allt gangi upp.

Árin sem Sigrún hefur starfað innan skautaíþrótta eru fjölmörg og hefur hún sinnt ýmsum störfum innan Skautasambandsins. Hún sat í stjórn ÍSS á árunum 2005-2009 og fór á þeim tíma á tvö þing alþjóðaskautasambandsins.

Hún sinnti uppbyggingarstarfi á mörgum sviðum og sinnti samhæfðum skautadansi, synchro, sérstaklega. Hún var fararstjóri í ýmsum ferðum og ferðaðist um allan heim á allskonar mót með flestum liðum sem hafa keppt alþjóðlega fyrir Íslandshönd í íþróttinni.

Sigrún sat í Valnefnd ÍSS, sem nú heitir Afreksnefnd, og tók við sem formaður nefndarinnar tímabilið 2015-2016.

Árið 2003 lærði Sigrún að sinna starfi Data og Video operator á og hefur hún setið á tæknipanel á nánast hverju einasta móti ÍSS síðan þá, og gerir það enn.

Sigrún er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju.
Um leið og við þökkum fyrir störf hennar í gegnum tíðina þá hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.

Þóra Gunnarsdóttir

Þóra  hefur starfað fyrir ÍSS frá því arið 2008. Hún sat í stjón á árunum 2008-2012 og svo aftur frá 2014-2016. Á árum hennar í stjórn sat hún í hinum ýmsu vinnuhópum og sat í grunnprófsnefnd og leiddi milliþinganefnd.

Þóra hefur sinnt ótal sjálfboðaliðastörfum innan skautaíþrótta bæði á Íslandi og erlendis en hún hefur verið sjálfboðaliði á ISU mótum einnig.

Árið 2016 tók Þóra að sér formennsku í Mótanefnd ÍSS og setti þar upp vinnulag og verklagsreglur sem auðvelda undirbúning og skipulag mótahalds á Íslandi. Hún hélt mótstjóranámskeið fyrir mótstjóra aðildarfélaganna sem setur grunninn að áframhaldandi samvinnu ÍSS og aðildarfélaganna um mótahald.

Hún er núna formaður Laganefndar ÍSS þar sem mikil og góð vinna fer fram. Hún starfar einnig í vinnuhóp um skautahlaup á Íslandi þar sem unnið er að uppbyggingu íþróttarinnar á Íslandi að nýju.

Áhugi og þekking Þóru á skautaíþróttum og sögu skautaíþrótta á Íslandi er gríðarlegur. Hún hefur til að mynda haldið utan um og sett upp afrekaskrá íslenska skautara og sett upp Wikipedia síður um íslenska skautara, íslensk mót og listskautamót Reykjavíkurleikanna.

Á árunum 2017-2020 sinnti hún einnig stöðu fjölmiðlafulltrúa ÍSS þar sem hún sá um samfélagsmiðla sambandsins og efldi íslenska skautara til þess að kynna bæði sig og íþróttina opinberlega.

Þóra er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju.
Um leið og við þökkum fyrir störf hennar í gegnum tíðina þá hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.

Halla Björg Sigurþórsdóttir

Halla Björg hóf skautaferil sinn hjá Skautafélagi Reykjavíkur þar sem hún keppti í einstaklingsskautum og fór svo snemma að æfa samhæfðan skautadans, eða synchro.

Síðustu 10 árin hefur Halla starfað með og fyrir ÍSS í hinum ýmsu verkefnum.

Hún er starfsmaður og dómara- og tæknipanel og sinnir þar ýmsum stöðurm. Hún er bæði dómari og yfirdómari. Hefur réttindi tæknistjórnanda og DRO. Dæmir einstaklings og paraskautun í IJS kerfinu ásamt því að dæma í Special Olympics og Félagalínu ÍSS.

Halla Björg hefur alþjóðleg dómararéttindi frá ISU, en hún náði þeim áfanga að vera yngsti dómari sem ISU hefur gefið alþjóðleg réttindi. Í sumar stefnir Halla að því að sækja alþjóðleg réttindi tæknistjórnanda, eða TC, og verður hún þá fyrst Íslendinag til þess að reyna við þau réttindi. Hún hefði átt að fara á síðasta ári, en vegna covid-19 var námskeiðið fellt niður í það skiptið.

Halla hefur sinnt nefndarstörfum hjá ÍSS til fjölda ára, bæði í Grunnprófsnefnd sem og Dómara- og tækninefnd en þar er hún sitjandi formaður.

Við uppfærslu á dómarakerfi Félagalínu ÍSS leiddi Halla það verkefni og setti upp forrit sem heldur utan um dómgæsluna þar.

Einnig hefur Halla miðlað af reynslu sinni og þekkingu til nýrra dómaraefna og gerir það af mikilli kostgæfni.

Halla Björg er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju. Um leið og við þökkum fyrir störf hennar í gegnum tíðina þá hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.

June Eva Clark

June sat í stjón ÍSS í fjölda ára og sinnti formennsku á frá 2007 til 2012. Á þeim tíma sem fór June sem fulltrúi ÍSS á tvö ISU þing.

Þar byggði hún upp mjög gott og sterkt tengslanet innan alþjóðlega skautasamfélagsins sem ÍSS býr enn að í dag.

Samhliða setu sinni sem formaður vann June á skrifstofu ÍSS og rak í raun allt sambandið og alla vinnuna sem þar fór fram.

Í vinnu sinni fyrir ÍSS lagði June grunn að miklu og góðu starfi fyrir sambandið. Má þar nefna t.d. uppbyggingu grunnprófa ÍSS og nefndum sem starfa innan ÍSS. Einnig var hún í skipulagnsnefnd fyrri Finnlandsverkefnið svokallaða.

Hún vann hart að því að ná synchro aftur á strik á Íslandi, en eins og þið vitið erum við ennþá í þeirri vinnu.

June lagði mikla áherslu á að vel væri haldið utan um afreksskautara ÍSS og að til væru menntaðir íslenskir starfsmenn á dómarapanel.

Hún reyndi í hvívetna að skapa tækifæri fyrir Íslendinga, hvort sem það voru skautarar, starfsmenn eða þjálfarar.

June er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju.

Sunna Björk Mogensen

Sunna Björk hóf skautaferil sinn hjá Skautafélagi Reykjavíkur þar sem hún keppti í einstaklingsskautum og fór svo snemma að æfa samhæfðan skautadans, eða synchro. Hún keppti fyrir Íslands hönd með Ísmolunum meðal annars á tveimur heimsmeistaramótum.

Sunna Björk hefur starfað fyrir ÍSS á ýmsum sviðum síðustu 17 árin.

Hún er fyrsti einstaklingurinn á Íslandi til þess að fá DRO réttindi og hefur hún starfað á lang flestum ÍSS mótum síðan að IJS kerfið var tekið í notkun á sínum tíma. Sunna er með ISU réttindi DRO og er hún fyrsti, og eini, starfsmaður ÍSS með ISU réttindi.

Hún hefur starfað á öllum Norðurlandamótum síðan að hún fékk alþjóðleg réttindi ásamt því að stafa á fjölda alþjóðlegra móta ár hvert.

Einnig hefur hún reglulega haldið námskeið fyrir upprennandi starfsmenn í stöðu DRO á dómarapanel á Íslandi.

Sunna Björk er með þjálfararéttindi og hefur verið mikill drifkraftur í synchro þjálfun á Íslandi. Hún hefur mikla reynslu af þjálfun í synchro og þjálfaði lið bæði hjá SR og Birninum.

Hún hefur unnið með ÍSS að uppbyggingu á synchro á Íslandi á ný og er hún einn af stofnendum Skautafélagsins Jökull.

Þar heldur hún einnig úti kennslu á rúlluskautum sem styður vel við þær áætlanir ÍSS um að rúlluskautaíþróttir muni heyra undir ÍSS.

Sunna Björk er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju. Um leið og við þökkum fyrir störf hennar í gegnum tíðina þá hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.

Sólveig Dröfn Andrésdóttir

Sólveig Dröfn hóf skautaferil sinn hjá Skautafélagi Reykjavíkur þar sem hún keppti í einstaklingsskautum lengi vel og fór svo snemma að æfði samhliða því samhæfðan skautadans, eða synchro. Hún keppti fyrir Íslands hönd með Ísmolunum meðal annars á tveimur heimsmeistaramótum.

Sólveig hefur starfað fyrir ÍSS á ýmsum sviðum síðustu 20 árin. Hún hefur tekið að sé ýmis sjálfboðastörf og meðal annars verið fararstjóri landsliðsins. Hún hefur sinnt ýmsum nefndarstörfum til lengri tíma og til að mynda í tækninefnd. Lengst af hefur hún sinnt afreksmálum innan ÍSS og setið í afreksnefnd og er núverandi formaður nefndarinnar. Innan afreksmála hefur Sólveig komið að mikilli uppbyggingu starfsins síðustu ár, verið sjúkraþjálfari afreksskautara, sinnt mælingum og séð um fræðslu svo eitthvað sé nefnt.

Sólveig er með þjálfararéttindi og hefur verið mikill drifkraftur í synchro þjálfun á Íslandi. Hún hefur mikla reynslu af þjálfun í synchro og þjálfaði lið bæði hjá SR og Birninum.

Hún hefur unnið með ÍSS að uppbyggingu á synchro á Íslandi á ný og er hún einn af stofnendum Skautafélagsins Jökull.

Sólveig hefur einnig komið að þjálfun hjá skautadeild Asparinnar

Sólveig er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju. Um leið og við þökkum fyrir störf hennar í gegnum tíðina þá hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.

María Fortescue

María hóf skautaferil sinn hjá Skautafélagi Reykjavíkur þar sem hún keppti í einstaklingsskautum lengi vel og fór svo snemma að æfði samhliða því samhæfðan skautadans, eða synchro.

Hún er starfsmaður á dómara- og tæknipanel og sinnir þar ýmsum stöðurm. Hún er bæði dómari og yfirdómari. Hefur réttindi tæknistjórnanda og DRO. Dæmir einstaklings og paraskautun í IJS kerfinu ásamt því að dæma í Special Olympics og Félagalínu ÍSS.

María hefur alþjóðleg réttindi dómara og var fyrsti íslenski dómarinn til þess að fá alþjóðleg yfirdómararéttindi.

Einnig hefur María miðlað af reynslu sinni og þekkingu til nýrra dómaraefna og gerir það af mikilli kostgæfni.

María hefur starfað fyrir ÍSS á ýmsum sviðum síðustu 18 árin. Hún hefur setið í ýmsum nefndum og vinnuhópum. Unnið að fjöldanum öllum að verkefnum og útgáfum af handbókum og verkferlum. Hún sinnir fræðslu til skautara, þjálfara, foreldra og aðstandenda ásamt endurgjöf til afreksskautara og þjálfara þeirra

Hún sat í stjórn sambandsins á árunum 2020-2022, hefur sótt tvö alþjóðleg skautaþing fyrir hönd ÍSS og starfar núna sem framkvæmdastjóri sambandsins.

María er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju. Um leið og við þökkum fyrir störf hennar í gegnum tíðina þá hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.

Hulda Líf Harðardóttir

Hulda Líf hóf skautaferil sinn hjá Skautafélagi Reykjavíkur þar sem hún keppti í einstaklingsskautum og fór svo snemma að æfa samhæfðan skautadans, eða synchro.

Hún er starfsmaður á dómara- og tæknipanel og sinnir þar ýmsum stöðurm. Hún er bæði dómari og yfirdómari. Hefur réttindi tæknistjórnanda og DRO. Dæmir einstaklings og paraskautun í IJS kerfinu ásamt því að dæma í Special Olympics og Félagalínu ÍSS.

Um árabil hefur hún sinnt nefndarstörfum hjá ÍSS, ýmist setið í tækninefnd ÍSS, sinnt formennsku þar eða verið fengin þar inn sem ráðgjafi í sérstök verkefni þegar þess hefur verið óskað.

Núna er Hulda að ljúka setu sinni í stjórn ÍSS eftir tvö ár þar.

Einnig hefur Hulda Líf miðlað af reynslu sinni og þekkingu til nýrra dómaraefna og gerir það af mikilli kostgæfni.

Hulda Líf hefur verið búsett í Svíþjóð um árabil og hefur þar öðlast reynslu og menntun sem dómari sem hefur reynst okkur hjá ÍSS ómetanlegt því það er alltaf gott að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni.

Hulda Líf er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju. Um leið og við þökkum fyrir störf hennar í gegnum tíðina þá óskum við henni velfarnaðar í störfum hennar í framtíðinni og vonumst til þess að geta átt gott samstarf í framtíðinni.

*móðir Huldu Líf tók á móti viðurkenningunni

Ásdís Rós Clark

Ásdís Rós hóf skautaferil sinn hjá Skautafélagi Reykjavíkur þar sem hún keppti í einstaklingsskautum lengi vel og fór svo snemma að æfði samhliða því samhæfðan skautadans, eða synchro. Hún keppti fyrir Íslands hönd með Ísmolunum meðal annars á heimsmeistaramóti.

Þegar Senior synchro liðið lagðist niður á Íslandi fluttist Ásdís svo til Gautaborgar í Svíþjóð þar sem að hún skautaði með sænska synchro liðinu Boomerang og keppti alþjóðlega með þeim.

Ásdís sótti sér þjálfaramenntun og starfaði lengi sem þjálfari bæði í einstaklingsskautum, þar sem hún sinnti einnig stöðu landsliðsþjálfara, og synchro.

Hún hefur lengst af verið Tæknisérfraæðingur (TS) á dómara- og tæknipanel og var hún fyrsti Íslendingurinn til þess að fá alþjóðleg réttindi tæknisérfræðings (e. International TS) frá Alþjóða skautasambandinu, ISU.

Um árabil sinnti hún nefndarstörfum hjá ÍSS, sat þá í tækninefnd og sinnti formennsku þeirrar nefndar. Einnig hefur hún komið inn í nefndarstörf sem sérfræðingur í ákveðin mál.

Einnig hefur Ásdís miðlað af reynslu sinni og þekkingu til nýrra dómara- og tæknistjórnendaefna. Má þar m.a. nefna kennslumyndbönd sem hún útbjó.

Ásdís Rós er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju. Um leið og við þökkum fyrir störf hennar í gegnum tíðina þá óskum við henni velfarnaðar í störfum hennar í framtíðinni og vonumst til þess að geta átt gott samstarf í framtíðinni.

Linda Viðarsdóttir

Linda hóf skautaferil sinn hjá Skautafélagi Reykjavíkur þar sem hún keppti í einstaklingsskautum lengi vel og fór svo snemma að æfði samhliða því samhæfðan skautadans, eða synchro. Hún keppti fyrir Íslands hönd með Ísmolunum meðal annars á tveimur heimsmeistaramótum.

Linda hefur starfað fyrir ÍSS á ýmsum sviðum, með hléum, síðustu 22 árin.. Hún hefur sinnt ýmsum nefndarstörfum til lengri tíma og til að mynda stofnaði hún þjálfararáð ÍSS á sínum tíma. Hún kom að uppbyggingu Skautum Regnbogann og Grunnprófum ÍSS þegar þessi stóru verkefni voru fyrst innleidd. Síðustu ár hefur hún setið í Afreksnefnd ÍSS.

Linda sótti sér þjálfaramenntun bæði á Íslandi sem og erlendis, þar sem að hún sótti sér þekkingu í þjálfun á afreksstigi. Hún starfaði lengi vel sem þjálfari hjá Skautafélagi Reykjavíkur bæði á meðan að hún skautaði sjálf og eftir það.

Þegar nýtt dómarakefi var innleitt hjá Alþjóða skautasambandinu og við á Íslandi tókum það upp meðal fyrstu þjóða var Linda hluti af innleiðingu á því kerfi og var fyrsti Tæknisérfræðinur (TS) á Íslandi.

Linda er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju. Um leið og við þökkum fyrir störf hennar í gegnum tíðina þá hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.

Aldís Kara Bergsdóttir

Silfurmerki ÍSS er veitt til íþróttafólks eftir langan feril sem landsliðsfólk og keppni fyrir hönd ÍSS.

Aldís Kara Bergsdóttir lagði skautana á hilluna eftir 15 ára feril í desember síðastliðnum. Að hennar eigin sögn höfðu listskautar verið allt hennar líf síðan hún steig fyrst á ísinn.

Hún æfði nánast alla sína tíð með Skautafélagi Akureyrar og lengst af undir leiðsögn Iveta Reitmayerova en síðar Darja Zajcenko. Síðustu mánuðina hafði hún fært sig yfir til Fjölnis og unnið þar undir leiðsögn Benjamin Naggiar.

Aldís Kara var sífellt að bæta sinn persónulega árangur og metin sem hún sló eru ófá í bæði Junior og Senior flokki. Íslandsmet hennar eru 136.14 heildarstig sem hún náði á Íslandsmeistaramóti 2021. Besta árangri sínum á alþjóðlegumóti náði hún á Finlandi Trophy 2021 þar sem hún hlaut 122.11 heildarstig.

Þátttaka hennar er gríðarlega mikilvæg fyrir skautaíþróttir á Íslandi og framþróun þeirra. Hún er fyrsti íslenski skautarinn til þess að hljóta þátttökurétt og taka þátt á Heimsmeistaramóti Unglinga og á Evrópumeistaramóti fullorðinna í 27 ára sögu Skautasambandsins.

Allan sinn skautaferil hefur Aldís Kara verið gríðarlega mikilvæg fyrirmynd fyrir sér yngri skautara þar sem hún hefur ávallt unnið að sínum markmiðum af mikilli elju.

Sigurlaug Árnadóttir

Silfurmerki ÍSS er veitt til íþróttafólks eftir langan feril sem landsliðsfólk og keppni fyrir hönd ÍSS.

Sigurlaug er fyrsti afreksskautari ÍSS á listskautum og var brautryðjandi í alþjóðlegri mótaþátttöku. Hún var Íslandsmeistari í Senior Women í 5 ár samfellt, árin 1998 - 2002. Hún var fyrst til þess að keppa á Norðurlandamóti og var meðal annars fyrst íslenskra skautara til þess að lenda tvöfaldan Axel.

Sigurlaug var fyrsti skautarinn til þess að fá útnefninguna Skautakona ársins og hlaut hún tilnefninguna þrjú ár í röð.

Hún var frábær fyrirmynd yngri skautara og ruddi brautina fyrir þá sem á eftir henni komu.

Kristín Harðardóttir

Silfurmerki ÍSS er veitt til íþróttafólks eftir langan feril sem landsliðsfólk og keppni fyrir hönd ÍSS.

Kristín vann mikið og ötult starf í uppbyggingu samhæfðs skautadsns, synchro, á Íslandi. Hún var fyrirliði fyrsta Senior liðsins á Íslandi þar sem að hún leiddi liðið á fjölmörg alþjóðleg mót, þar á meðal á tvö heimsmeistaramót. Það var í fyrsta sinn sem Ísland átti fulltrúa á stórmóti ISU. Gaman er að segja frá því að þetta var einnig í fyrsta sinn sem íslenskt kvennalið keppti á heimsmeistaramóti, þvert á allar íþróttagreinar.

Kristín var valin Skautari ársins árið 2002.

Ásamt því að skauta sjálf í synchro liði þá sá Kristín einnig um þjálfun yngri liða og stuðlaði þannig að áframhaldandi þróun íþróttarinnar á Íslandi og var mikil fyrirmynd þeirra þjálfara sem á eftir henni komu.

Katla Rún Ísfeld Erlendsdóttir

Katla Rún hóf skautaferil sinn hjá Skautafélagi Reykjavíkur þegar hún var 10 ára gömil, þar sem hún keppti lengi vel í einstaklings skautum. Hún fylgdi svo hópnum í synchroið og skautaði þá með Norðurljósunum.

Katla Rún hafði svo áhuga á að haldast inni í skautaíþróttum og sótti þá námskeið sem DRO. Hún hefur síðan starfað sem DRO fyrir ÍSS og er núna með alþjóðleg réttindi. Í sumar mun hún svo sækja námskeið og þreita próf til ISU réttinda.

Í framhaldi af því að Katla var lengi á tæknipanel sem DRO fór hún og sótti námskeið sem Tæknisérffræðingur og er hún núna með landsréttindi sem TS.

Einnig hefur Katla Rún setið í tækninefnd ÍSS sem og ferðast sem liðsstjóri með landsliði ÍSS.

Stjórn ÍSS óskar henni innilega til hamingju með viðurkenninguna. Um leið og við þökkum fyrir strf hennar í gegnum tíðina þá hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.

Guðrún Brynjólfsdóttir

Guðrún brynjólfs hóf skautaferil sinn hjá Skautafélagi Akureyrar þar sem hún skautaði og keppti í einstaklingsskautum.

Hún sótti svo dómaranámskeið hjá ÍSS og hefur síðan þá starfað á dómarapanel fyrir ÍSS sem dómari, yfirdómari og tæknistjórnandi (TC).

Guðrún sat einnig lengi vel í tækninefnd ÍSS og sat sem formaður nefndarinnar. Með nefndinni vann hún meðal annars að uppfærslu á nýju keppniskerfi félaganna.

Samhliða dómarastörfum var Guðrún að þjálfa hjá skautadeild Aspar í nokkur ár.

Guðrún hefur setið í stjórn ÍSS síðan árið 2023.

Stjórn ÍSS óskar henni innilega til hamingju með viðurkenninguna. Um leið og við þökkum fyrir strf hennar í gegnum tíðina þá hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.

Gullmerki ÍSS

Guðbjört Erlendsdóttir

Gullmerki ÍSS er veitt þeim sem unnið hafa ötult og óeigingjarnt starf í þágu skautaíþrótta á Íslandi í 20 ár, eða þegar stjórn þykir sérstök ástæða til.

Stjórn veitti að þessu sinni Guðbjörtu Erlendsdóttur Gullmerki ÍSS.

Guðbjört stundaði listskauta til margra ára hjá Skautafélagi Reykjavíkur. Þar var hún einnig hluti af fyrsta íslenska liðinu í samhæfðum listskautum (e. Synchronized skating) og keppti með þeim á fjölmörgum mótum, þar á meðal tveimur heimsmeistaramótum, en það er í fyrsta sinn sem íslenskt kvennalið keppti á heimsmeistaramóti og í fyrsta sinn sem íslenskir skautarar kepptu á heimsmeistaramóti.

Á meðan að Guðbjört var ennþá að skauta og keppa sjálf sótti hún dómaranámskeið hjá ÍSS. Samhliða sinni iðkun dæmdi hún á flestum mótum á Íslandi. Eftir að hún hætti sjálf að skauta hélt hún áfram dómgæslu bæði innanlands og erlendis.

Guðbjört var fyrst íslenskra dómara til þess að fá alþjóðleg réttindi frá ISU. Fékk hún þau réttindi eftir námskeið í Finnlandi í október árið 2007. Árið 2008 var hún fyrsti íslenski dómarinn til þess að dæma á Norðurlandamóti og sama ár dæmdi hún einnig á Copenhagen Trophy og var þar með fyrsti íslenski dómarinn til þess að dæma á móti á lista ISU.

Á þeim árum sem Guðbjört dæmdi á vegum ÍSS var hún í þeim hópi sem stofnaði dómara- og tækninefnd ÍSS. Þar var grunnurinn unninn að þeim dómarakerfum sem notuð voru innan ÍSS til margra ára. Ísland var eitt af fyrstu löndunum til þess að taka upp nýtt dómarakerfi ISU, svokallað IJS kerfi eða International Judging System. Kom það í framhaldi af 6.0 kerfinu sem notast hafði verið við innan skautaíþrótta í öllum heiminum. Guðbjört, ásamt fleiri aðilum, vann mikla undirbúningsvinnu fyrir þessa innleiðingu sem stuðlaði að mikilli og góðri þekkingu á kerfinu á Íslandi.

Ásamt nefndarvinnu og dómgæslu vann Guðbjört einnig að uppsetningu og innleiðingu að Grunnprófum ÍSS, sem eru grunnurinn að þeim prófum sem ÍSS notast við í dag.

Árið 2010 sagði Guðbjört skilið við dómarastörf sín. Eða svo taldi hún !

Hún fór fljótlega að aðstoða Helgu Olsen við það að setja á stofn skautadeild innar Íþróttafélagsins Aspar og þjálfaði hún innan þeirrar deildar í nokkur ár. Á þeim tíma kynnti hún sér vel þau dómarakerfi sem notuð eru innan Special Olympics, en þar var notast við gamla 6.0 kerfið allt til ársins 2019.

Guðbjört var í hópi dómara sem unnu að nýju og bættu dómarakerfi í sérstöku samstarfsverkefni Special Olympics á Íslandi með öðrum þjóðum sem vildu bæta aðgengi fatlaðra einstaklinga að skauta íþróttum með það að markmiði að einstaklingar gætu keppt á jafningjagrundvelli og frammistaða þeirra metin út frá getu og líkamlegum burðum.

Var þetta verkefni stórt og viðamikið og komu margir einstaklingar að því úr öllum áttum og með ýmis sérfræðisvið. Þetta dómarakerfi er í raun grunnurinn að því dómarakerfi sem Special Olympics notar í dag..

Það var svo í apríl árið 2016 sem Guðbjört bauð sig fram til formanns stjórnar ÍSS.

Síðan þá hefur hún unnið ötult starf sem fór langt út fyrir starfsvið formanns stjórnar.

Hún hefur unnið að því að efla afreksstarf innan sambandsins ásamt því að auka þekkingu dómara- og tæknifólks. Á síðustu fjórum árum hafa þrír íslenskir dómarar fengið alþjóðleg dómararéttindi frá ISU og heldur ÍSS áfram að stuðla að frekari menntun og reynslu fyrir sitt starfsfólk.

Guðbjört er vel að þessari viðurkenningu komin og óskar stjórn ÍSS henni innilega til hamingju um leið og við þökkum henni fyrir störf sín í gegnum tíðina.

Helga Olsen

Helga hefur unnið að margvíslegu starfi fyrir ÍSS 25 ár.
Ber þá helst að nefna nefndarstörf, þjálfaramenntun og þróun á skautaþjálfun fyrir einstaklinga með fötlun.

Sunna Björk Mogensen

Sunna hefur unnið fyrir ÍSS í hinum ýmsu störfum í 20 ár.
Lengst af sem starfsmaður á dómarapanel í stöðu DRO, en hún er fyrsti fulltrúi ÍSS með ISU réttindi. Hún hefur einnig komið að þjálfun og þá aðallega í synchro og vinnur að endurvakningu greinarinnar á Íslandi.

Sólveig Dröfn Andrésdóttir

Sólveig hefur sinnt nefndar- og þjálfunarstörfum fyrir ÍSS í 21 ár. Lengst af í afreksmálum og er hún sjúkraþjálfari afrekshópa ÍSS.

María Fortescue

María hefur unnið í fjölmörgum störfum og verkefnum fyrir ÍSS í 20 ár. Störfin eru margvísleg eins og þau eru mörg. Nefndarstörf, vinnuhópar, stjórnarseta og starfsmaður á dómarapanel með alþjóðleg réttindi dómara og yfirdómara. Hún starfar núna sem framkvæmdastjóri ÍSS.

Svava Hróðný Jónsdóttir

Svava Hróðný hefur unnið fyrir ÍSS í 25 ár. Fyrst um sinn sem starfsmaður á dómarapanel með landsréttindi sem bæði dómari og yfirdómari. Hún kom að uppbyggingu nefnda ÍSS með vinnu í dómara- og tækniráði ásamt fjölmörgum vinnuhópum og verkefnum bæði fyrir ÍSS sem og Special Olympics. Ásamt því að sitja í stjórn starfar hún sem Verkefna- og afreksstjóri ÍSS.

Svava Hróðný er sitjandi formaður ÍSS og hefur setið í stjórn ÍSS í 9 ár, þar af 5 sem formaður.

Translate »