24. Skautaþing ÍSS; Fyrra fundarboð

24. Skautaþing ÍSS; Fyrra fundarboð

Skautaþing ÍSS, 13. maí 2023, fyrra fundarboð

Í samræmi við 6. grein laga ÍSS, er hér með boðað til 24. Skautaþings ÍSS. Skautaþingið verður haldið laugardaginn 13. maí á Bryggjunni Brugghúsi, Grandagarði 8, 101 Reykjavík.

Tillögur sem óskast teknar fyrir á Skautaþingi, skulu hafa borist stjórn ÍSS minnst þremur vikum fyrir Skautaþing, þ.e. 22. apríl nk.

Tilkynningar um framboð til stjórnar og varastjórnar ÍSS skulu berast kjörnefnd Skautaþings eigi síðar en þremur vikum fyrir Skautaþing, þ.e. 22. apríl nk.

Eigi síðar en tveimur vikum fyrir Skautaþing, þ.e. 29. apríl nk., skal ÍSS senda aðilum dagskrá þingsins og tillögur sem borist hafa ásamt þeim tillögum sem ÍSS hyggst leggja fyrir þingið.

f.h. Skautasambands Íslands
Svava Hróðný Jónsdóttir

Formaður ÍSS

María Fortescue

Framkvæmdastjóri ÍSS

Translate »