Aldís Kara Bergsdóttir valin Skautakona ársins 2022

Aldís Kara Bergsdóttir valin Skautakona ársins 2022

Skautasamband Íslanda hefur valið Aldísi Köru Bergsdóttur sem skautakonu ársins 2022. Er þetta í fjórða sinn sem hún hlýtur tilnefningu til skautakonu ársins.

Í janúar 2022 keppti Aldís Kara fyrst íslenskra skautara á Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Tallinn, Eistlandi, og hlaut 42,23 stig  sem skilaði henni 34. sæti. Eftir þátttöku sína á Evrópumeistaramótinu keppti hún á Norðurlandamótinu í Hørsholm, Danmörku en þar hlaut hún alls 119,75 stig. En það eru hæstu stig sem íslenskur skautari hefur fengið á Norðurlandamóti. Aldís lauk svo tímabílinu með þátttöku sinni á RIG með alls 117,31 stig. Síðasta mót Aldísar var svo Haustmót 2022 sem haldið var í Egilshöll þar sem hún fékk 93,19 stig.

Aldís Kara Bergsdóttir tilkynnti nýverið að hún hefði lagt skautana á hilluna eftir 15 ára farsælan skautaferil. Hún æfði með Skautafélagi Akureyrar lengst af undir leiðsögn Iveta Reitmayerova en síðar Darja Zajcenko. Síðustu mánuði hafði hún fært sig yfir til Fjölnis og unnið þar undir leiðsögn Benjamin Naggiar.

Sem fráfarandi afreksskautari í Senior flokki var Aldís Kara sífellt að bæta sinn persónulega árangur en Íslandsmet hennar eru 136,14 heildarstig sem hún náði á Íslandsmóti 2021. Besta árangri sínum á alþjóðlegu móti náði hún á Finlandia Trophy 2021 þar sem hún hlaut 122,11 heildarstig.

Þátttaka hennar er ekki síður mikilvæg fyrir alla íþróttina en hún er fyrsti íslenski skautarinn til að hljóta þátttökurétt á Heimsmeistaramóti Unglinga og á Evrópumeistaramóti í 27 ára sögu Skautasambandsins.

Allan sinn skautaferil hefur Aldís Kara verið gríðarlega mikilvæg fyrirmynd fyrir sér yngri skautara þar sem hún hefur ávallt unnið að sínum markmiðum af mikilli elju. Er ekki annað hægt að segja en að hún geti gengið stolt frá borði.

Skautasamband Íslands og afreksnefnd ÍSS óska Aldís Köru innilega til hamingju með verðskuldaðan titil.
Um leið þökkum við fyrir gott samstarf, það hefur verið gaman að fylgja henni eftir í gegnum árin og það verður spennandi fyrir skautafjölskylduna að fylgjast með henni í framtíðinni.

Translate »