Bikarmeistarar ÍSS 2022

Bikarmeistarar ÍSS 2022

Skautafélag Reykjavíkur Bikarmeistarar ÍSS 2022

Í lok Vormóts ÍSS varð ljóst hvaða félag hreppti titilinn Bikarmeistarar ÍSS 2022.

Félög safna stigum á mótum ÍSS yfir keppnisveturinn og tekur efsti keppandi frá hverju félagi stig fyrir félag sitt sem eru svo lögð saman eftir veturinn. Það félag sem stendur uppi með flest stig er bikarmeistari. Enginn keppnisflokkur á Vormóti hafði keppendur frá öllum félögum og var þá virkjuð varaklausa úr reglugerð þar sem úrslit í keppnisflokkum þar sem tvö félög hefðu keppendur í giltu til stiga.

Þegar búið var að skoða úrslit mótsins var ljóst að Skautafélag Reykjavíkur stóð uppi sem sigurvegari Bikarmótaraðar 2022 með 104 stig. Þetta er í fyrsta sinn sem SR fær bikarinn og mun nú varðveita hann í eitt ár.

Translate »