Framboðsfrestur framlengdur

Framboðsfrestur framlengdur

KJÖRNEFND ÍSS ÓSKAR EFTIR FRAMBOÐUM FYRIR SKAUTAÞING ÍSS 2022

Samkvæmt lögum ÍSS skal kjósa stjórn til tveggja ára. Á sléttu ártali skal kjósa tvo aðalmenn og einn varamann. Hitt árið skal kjósa formann, tvo aðalmenn og einn varamann.

Á Skautaþingi sem haldið verður 30. apríl 2022 verður því, skv. lögum ÍSS, kosið um tvo aðalmenn og einn varamann til tveggja ára.

Um hæfi til stjórnarsetu er vísað í 7. grein laga ÍSS á heimasíðu, www.iceskate.is. Sérstök athygli er vakin á því að þeir sem bjóða sig fram til stjórnarsetu í stjórn ÍSS mega ekki hafa hlotið refsidóma vegna brota á ákvæði XXII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 eins og kveður á í lögum ÍSÍ 2. kafla 5a.

Framboðsfrestur rann út 8. apríl 2022. Ekki bárust nægileg framboð í stöðu varamanns og hefur Kjörnefnd ÍSS því framlegt framboðsfrestinn í þá stöðu til og með 23. apríl 2022. Framboðum og ábendingum skal skilað til kjörnefndar á netfangið kjornefnd@iceskate.is.

 

Kjörnefnd Skipa:

Formaður:
Kristín Ómarsdóttir (Jökull)

Nefndarmenn:
Anna Kristín Jeppesen (SR)
Hrafnhildur Guðjónsdóttir (SA)
Ingimar Ingason (Ösp)
Rakel Hákonardóttir (Fjölnir)

Translate »