22. Skautaþing ÍSS – seinna fundarboð

22. Skautaþing ÍSS – seinna fundarboð

Seinna fundarboð, 22. Skautaþing ÍSS, 1. maí 2021

Í samræmi við 6. grein laga ÍSS sendist ykkur hér með tillögur til Skautaþings, bæði frá stjórn ÍSS og innsendar tillögur frá aðildarfélögum, dagskrá og fyrirkomulag þings.

Þingstaður

Þingið verður haldið í húsnæði ÍSÍ við Engjaveg 6, 104 Reykjavík, í sal E

Til þess að uppfylla skilyrði um samkomutakmarkanir verður fundarstað skipt upp í tvö 20 manna hólf. Þingfulltrúar og aðrir gestir skiptast upp í sóttvarnarhólf eftir þingnefndum. Send verða út skráningarblöð fyrir þing þar sem fulltrúar skrá sig í þingnefnd.

Þingsetning

Þingsetning verður kl. 11:30 þann 1. maí 2021. Þingslit eru áætluð kl.16:00. Boðið verður uppá léttar veitingar.

Þinggögn

Þinggögn verða aðgengileg útprentuð á þingstað en þau verða einnig send út í tölvupósti.

Dagskrá samkv. 9 grein laga ÍSS

  1. Þingsetning
  2. Kosin þriggja manna kjörbréfanefnd
  3. Kosning þingforseta
  4. Kosning þingritara
  5. Skýrsla stjórnar lögð fram
  6. Ársuppgjör sambandsins lagt fram
  7. Umræður og samþykkt reikninga
  8. Ávarp gesta
  9. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram
  10. Kosning þingnefnda
  11. Lagabreytingatillögur
  12. Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði og önnur mál sem lögð hafa verið fyrir þingið ef þingmeirihluti leyfir
  13. Þingnefndir taka til starfa
  14. Þingnefndir gera grein fyrir störfum sínum
  15. Umræður um tillögur nefnda og atkvæðagreiðslur um þær
  16. Önnur mál
  17. a) Reglur um meðhöndlun kærumála
  18. Kosning stjórnar ÍSS og varastjórnar, skv. 12. gr.
  19. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga
  20. Þingslit

Ef einhverjar spurningar vakna, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu

Translate »