Framboð til sjórnar Skautasambands Íslands, ÍSS

Framboð til sjórnar Skautasambands Íslands, ÍSS

FRAMBOÐ TIL STJÓRNAR SKAUTASAMBANDS ÍSLANDS, ÍSS

Kjörnefnd ÍSS óskar eftir framboðum fyrir Skautaþing 2019.

Samkvæmt lögum ÍSS skal kjósa stjórn til tveggja ára. Á sléttu ártali skal kjósa formann, tvo aðalmenn og einn varamann. Hitt árið skal kjósa tvo aðalmenn og einn varamann.

Á skautaþingi 2019 verður því, skv. lögum ÍSS, kosið um tvo aðalmenn og einn varamann til tveggja ára en auk þess einn varamann til eins árs. 

Um hæfi til stjórnarsetu er vísað í 6.grein laga ÍSS á heimasíðu www.iceskate.is

Framboðsfrestur rennur út 16. mars 2019 og skal framboðum skilað til kjörnefndar, á netfangið info@iceskate.is

Kjörnefnd skipa:

Guðrún M. Hannesdóttir - Skautadeild Aspar

Ingibjörg Magnúsdóttir - SA

Kristjana Daníelsdóttir - Fjölnir

Selma Gísladóttir - SR

Translate »