Ísold Fönn slær stigamet

Ísold Fönn slær stigamet

Keppendur úr Afrekshóp ÍSS hafa verið á faraldsfæti að undanförnu og náð eftirtektarverðum árangri.

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir keppti á Tirna­via Ri­dell Ice Cup í Slóvakíu, sem fór fram 2.-5. nóvember sl.
Hún landaði þar 4. sæti með 86.88 stig og setti hún nýtt stiga­met í flokkn­um Advanced Novice hjá ís­lensk­um skaut­ara, sem staðið hafði frá byrj­un árs 2016.
25 Kepp­end­ur voru í flokknum.

Einnig keppti Ísold Fönn á Leo Scheu Memorial, í Graz, Austurríki, sem fór fram dagana 8.-12. nóvember sl.
Þar lenti hún aftur 4. sæti með 79.29 stig.

Ísold er ekki nema 11 ára göm­ul og er yngsti skaut­ari sem keppt hef­ur í þessum flokki fyr­ir Íslands hönd.

Skautasamband Íslands óskar henni til hamingju með frábæran árangur.

Translate »