#skatingiceland
Haustmót ÍSS 2026

Haustmót ÍSS 2026

Haustmót ÍSS 2026 fór fram í Egilshöll

Haustmót Skautasambands Íslands fór fram í Skautahöllinni í Egilshöll dagana 25.–27. september og markaði upphaf nýs keppnistímabils hjá íslenskum skauturum.

Mótið var umfangsmikið og tóku fjölmargir keppendur þátt í mótinu í fjölbreyttum flokkum og greinum.
Keppt var í Keppnislínu ÍSS, Félagalínu, Special Olympics og skautahlaupi, og gaf mótið þannig fjölbreyttum hópi skautara tækifæri til að hefja keppnistímabilið.

Í keppnislínu ÍSS var keppt í flokkum allt frá yngstu keppendum upp í Junior Women.

Sérstök áhersla var einnig á þátttöku yngstu skautaranna. Keppendur í Chicks- og Cubs-flokkum, 6 árga og yngri, 8 ára og yngri og 10 ára og yngri, fá ekki birt opinber úrslit. Þess í stað fá þau þátttökuviðurkenningu fyrir frammistöðu sína á mótinu. Með þessu er lögð áhersla á að fyrstu skrefin í keppni snúist fyrst og fremst um upplifun, þátttöku og að njóta þess að stíga á ísinn.

Í félagalínunni var keppt í aldursskiptum flokkum og tóku þar einnig þátt skautarar með ólíkan bakgrunn og reynslu.
Þá fór fram keppni í Special Olympics og skautahlaupi sem undirstrikar breiddina í starfsemi Skautasambands Íslands og mikilvægi þess að skapa vettvang fyrir ólíkar greinar og hópa innan skautaíþrótta.

Haustmótið er fyrsta mót tímabilsins og því mikilvægur upphafspunktur fyrir skautara, þjálfara, dómara, starfsfólk og félög. Mótið gefur keppendum tækifæri til að hefja tímabilið af krafti, öðlast keppnisreynslu og setja sér markmið fyrir komandi mánuði.

Skautasamband Íslands þakkar öllum keppendum, þjálfurum, dómurum, starfsfólki, sjálfboðaliðum, félögum og fjölskyldum fyrir þátttökuna og framlag þeirra til mótsins.

Til hamingju öll með frábæra byrjun á nýju keppnistímabili!

Úrslit og gögn

Úrslit  eru aðgengileg á síðu mótsins:

Úrslit og gögn Haustmóts ÍSS 2026

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Translate »