Sex daga fræðslu- og þjálfunarferð til Heerenveen gaf íslenskum skauturum og þjálfurum einstakt tækifæri til að læra af reynslumiklu fagfólki, kynnast nýjum þjálfunaraðferðum og afla þekkingar til áframhaldandi uppbyggingar skautahlaups á Íslandi.
Sendinefnd frá Skautasambandi Íslands fór í sex daga fræðslu- og þjálfunarferð til Heerenveen í Hollandi. Í hópnum voru þrír þjálfarar, tveir skautarar og tveir fulltrúar skautahlaupsnefndar ÍSS. Markmið ferðarinnar var að kynna sér uppbyggingu skautahlaups, þróun þjálfunar og markmiðasetningu, auk þess að gefa íslenskum skauturum og þjálfurum tækifæri til að öðlast reynslu við aðstæður á alþjóðlegum vettvangi.
Alþjóðleg þekking og leiðsögn í Thialf
Heerenveen er heimili Thialf-skautahallarinnar, einnar þekktustu skautaaðstöðu Hollands og mikilvægrar miðstöðvar skautahlaups. Þar er einnig starfrækt ISU Center of Excellence, miðstöð á vegum alþjóðlega skautasambandsins sem veitir skauturum og þjálfurum frá ýmsum löndum tækifæri til að æfa og læra af sérfræðingum í fremstu röð. Verkefnið er sérstaklega mikilvægt fyrir þátttakendur frá löndum þar sem aðstaða og þjálfunarmöguleikar eru takmarkaðir.
Íslenski hópurinn fékk þar dýrmætt tækifæri til að kynnast þjálfunaraðferðum og nýta þá aðstöðu og þekkingu sem miðstöðin býður upp á. Þjálfararnir þrír nutu leiðsagnar Benny Bruggeman, þjálfara unglingalandsliðs Hollands, sem fylgdi hópnum alla sex dagana. Hann miðlaði af reynslu sinni og veitti þjálfurunum mikilvæga aðstoð við skipulag æfinga, tækniþjálfun og mótun þjálfunarmarkmiða. Leiðsögn hans og gagnlegar ábendingar munu nýtast við áframhaldandi þróun þjálfunarstarfsins á Íslandi.
Skautararnir æfðu bæði skautaat (short track) og skautahlaup (long track) og fengu leiðbeiningar um skautatækni, líkamsstöðu og beygjur. Einnig var farið yfir hvernig uppsetning skauta og réttur búnaður getur hjálpað skauturum að ná betri tækni.
Þá var lögð áhersla á markmiðasetningu, bæði fyrir einstaka skautara og í þjálfunarstarfinu í heild. Þátttakendur kynntu sér hvernig skipuleggja má þjálfun til lengri tíma, setja raunhæf markmið og byggja upp þjálfunarferli sem styður við framfarir skautara.
Um afísþjálfunina sá Sujun Baek, reyndur skautaþjálfari frá Kóreu, sem leiðbeindi hópnum við æfingarnar. Hann gerði miklar kröfur til skautaranna og þjálfaranna, sem tókust á við verkefnin af krafti og stóðu sig afar vel. Þátttakendur fengu þannig bæði hagnýta þjálfun og innsýn í þær kröfur sem gerðar eru til skautara í fremstu röð.
Þekking sem nýtist í uppbyggingu skautahlaups á Íslandi
Ferðin snerist ekki eingöngu um æfingar á ísnum. Fulltrúar skautahlaupsnefndar fengu meðal annars að kynna sér framkvæmd tímatöku, uppsetningu og merkingu brauta á ísnum og hvernig best er staðið að viðhaldi og heflun íss fyrir skautahlaup.
Fulltrúarnir nýttu jafnframt ferðina til að afla upplýsinga um áframhaldandi þróun verkefna og markmiða ÍSS. Fundur var haldinn með fulltrúa skautahlaupsdeildar hollenska skautasambandsins, KNSB, Wilf O´Reilley, þar sem rætt var um uppbyggingu íþróttarinnar í Hollandi og næstu skref í þróun hennar. Samtalið veitti mikilvæga innsýn í hvernig hægt er að byggja markvisst upp skautahlaup á Íslandi út frá þeirri stöðu sem íþróttin er í hér á landi í dag.
Ellefu skautahlaupsskautar til útlána til félaganna
Mikilvægur þáttur ferðarinnar var einnig að bæta aðgengi að búnaði fyrir þá sem vilja prófa skautahlaup. Í ferðinni voru keyptir skautahlaupsskautar fyrir styrk frá samfélagsverkefni Krónunnar, sem styrkti Skautasamband Íslands til kaupa á 11 skautahlaupsskautum.
Skautarnir verða lánaðir til skautafélaganna svo áhugasamir geti prófað íþróttina án þess að þurfa að fjárfesta í eigin búnaði áður en þeir vita hvort hún hentar þeim. Með þessu verður auðveldara fyrir börn, ungmenni og aðra áhugasama að stíga sín fyrstu skref í skautahlaupi.
Auk þess fengu skautarar og þjálfarar tækifæri til að kaupa sér búnað, meðal annars hjálma og sérstaka skautahlaupsgalla sem vernda líkamann fyrir skurðum hárbeitrra skautahlaupsblaða. Þau fengu jafnframt leiðbeiningar um val á búnaði og hvaða lausnir henta hverjum og einum best.
Árangursrík ferð sem skilar sér heim
Ferðin var farin með stuðningi Erasmus+ áætlunar Evrópusambandsins og með aðstoð Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ).
Að ferð lokinni kom hópurinn heim með nýja þekkingu á þjálfunaraðferðum, markmiðasetningu, tæknilegum þáttum skautahlaups og undirbúningi æfinga. Jafnframt skapaðist dýrmætt tækifæri til að efla tengsl við erlenda sérfræðinga og kynnast því hvernig unnið er að þróun íþróttarinnar í landi þar sem skautahlaup á sér langa hefð.
Ferðin er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu skautahlaups á Íslandi. Þekkingin og reynslan sem skautarar, þjálfarar og fulltrúar skautahlaupsnefndar tóku með sér heim mun nýtast í starfi ÍSS á næstu misserum, bæði við þróun þjálfunar og við að skapa fleiri tækifæri fyrir fólk til að kynnast íþróttinni og taka þátt í henni.
Fjölnota íþróttamannvirki til fyrirmyndar
Thialf sýnir hvernig stórt fjölnota íþróttamannvirki getur þjónað mörgum verkefnum samtímis. Á meðan unglingalandslið Hollands æfði skautaat voru byrjendur í skautaskóla á litlum ís við hliðina. Á skautahlaupsbrautunum, fóru fram á sama tíma, almenningsskautun á helmingi þeirra og æfingar fyrir maraþonkeppni í skautahlaupi á hinum helmingnum. Skömmu síðar hófst krulluæfing á aukasvelli í miðju hússins.
Við hlið skautabrautanna er fullbúin skautahöll með þar sem stundað er listhlaup á skautum og íshokkí. Þar eru einnig íþróttasalir, fundarherbergi, samkomusalir og veitingastaðir.
Aðstaðan er til fyrirmyndar og sýnir hvernig hægt er að skapa öfluga umgjörð um fjölbreytt íþróttastarf. Það er von Skautasambands Íslands og þátttakenda í ferðinni að Ísland geti í framtíðinni byggt upp sambærilega aðstöðu fyrir skautahlaup og aðrar ísíþróttir.
