#skatingiceland
Nýr framkvæmdastjóri ÍSS

Nýr framkvæmdastjóri ÍSS

Einar Björn Einarsson hefur verið ráðinn sem nýr framkvæmdastjóri á skrifstofu ÍSS.

Einar hóf störf þann 1.júní sl. og mun starfa á skrifstofu ÍSS við Engjaveg.

"Ég er 3 barna faðir búsettur á Akranesi. Fjölskyldan skipar stóran sess í mínu lífi og hef ég jafnframt mikinn áhuga á íþróttum og hreyfingu. Ég er afar spenntur að taka við starfi framkvæmdastjóra ÍSS og hlakka til að vinna með því öfluga fólki sem kemur að Sambandinu. Framundan eru spennandi verkefni og ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs ÍSS."

Við bjóðum Einar Björn velkominn í skautafjölskylduna

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Translate »