Elín Katla Sveinbjörnsdóttir hefur náð þeim lágmörkum sem þarf til að vinna sér inn keppnisrétt á heimsmeistaramóti unglinga í listskautum, ISU World Junior Figure Skating Championships.
Þetta er glæsilegur áfangi fyrir Elínu Kötlu, sem er aðeins að hefja feril sinn í unglingaflokki. Hún er á sínu fyrsta ári í junior og keppti í Bangkok um síðustu helgi á sínu fyrsta móti í hinni virtu ISU Junior Grand Prix-mótaröð.
Junior Grand Prix er alþjóðleg mótaröð ISU fyrir efnilegustu unga skautara heims og er mikilvægur vettvangur fyrir þá sem stefna á að keppa á stærstu alþjóðlegu mótum framtíðarinnar.
Í Bangkok stóð Elín Katla sig vel í harðri alþjóðlegri keppni og lauk keppni í 14. sæti af 38 keppendum. Hún fékk 51,10 stig í stuttu prógrammi og 90,73 stig í frjálsu prógrammi, samtals 141,83 stig.
Þetta var aðeins annað alþjóðlega mót Elínar Kötlu og jafnframt fyrsta JGP-mótið hennar. Árangurinn í Bangkok markar því mikilvægt skref á alþjóðlegum ferli hennar.
Til þess að öðlast keppnisrétt á Junior Worlds þurfa skautarar að ná ákveðnum lágmörkum í tæknilegum stigum samkvæmt reglum ISU. Lágmörkin eru byggð á samanlögðum tæknistigum úr stuttu og frjálsu prógrammi og þurfa að nást á alþjóðlegu móti sem ISU viðurkennir á yfirstandandi eða næstliðnu keppnistímabili.
Í ISU Communication no.2818 eru tilgreind lágmörk á úrslitamót á árinu 2027. Þar kemur fram að keppendur í Junior Women þurfa að lágmarki 72.00 tæknistig. Elín Katla fékk 75.22 stig.
Með þessum árangri hefur Elín Katla nú tryggt sér möguleikann á að keppa á ISU World Junior Figure Skating Championships, sem fara fram í Sofia í Búlgaríu í febrúar 2027.
Elín Katla er annar íslenski skautarinn, í sögunni, til þess að vinna sér inn keppnisrétt á heimsmeistaramóti unglinga.
Framundan er spennandi keppnistímabil hjá Elínu Kötlu. Hún mun meðal annars taka þátt í Northern Lights Trophy í Reykjavík og Norðurlandamótinu (Nordics) í Finnlandi, auk fleiri alþjóðlegra móta. Mótin verða mikilvægur hluti af undirbúningi hennar fyrir Junior Worlds.
Elín Katla er því sannarlega skautari sem vert er að fylgjast með á næstu árum. Hún er enn í upphafi alþjóðlegs ferils síns en hefur þegar náð mikilvægum áfanga sem gefur góð fyrirheit um spennandi framtíð.
Við óskum Elínu Kötlu innilega til hamingju með árangurinn og hlökkum til að fylgjast með henni á komandi keppnistímabili!
