Skautaþing ÍSS, 9. maí 2026, fyrra fundarboð
Í samræmi við 6. grein laga ÍSS, er hér með boðað til 27. Skautaþings ÍSS. Skautaþing verður
haldið laugardaginn 9. maí í Egilshöll, Fossaleyni 1, 112 Reykjavík.
Tillögur sem óskast teknar fyrir á Skautaþingi, skulu hafa borist stjórn ÍSS minnst þremur
vikum fyrir Skautaþing, þ.e. 18. apríl nk.
Tilkynningar um framboð til stjórnar og varastjórnar ÍSS skulu berast kjörnefnd Skautaþings
eigi síðar en þremur vikum fyrir Skautaþing, þ.e. 18. apríl nk.
Eigi síðar en tveimur vikum fyrir Skautaþing, þ.e. 25. apríl nk., skal ÍSS senda aðilum dagskrá
þingsins og tillögur sem borist hafa ásamt þeim tillögum sem ÍSS hyggst leggja fyrir þingið.
