Edda Sigurlaug Indriðadóttir, skautahlaupari, heimsótti Vormót ÍSS
Edda Sigurlaug Indriðadóttir
f. 24.10.1936
Skautafélag Akureyrar
Edda Sigurlaug Indriðadóttir er ein af frumkvöðlum íslensks skautahlaups í langri braut (e. Long track) og sannkölluð fyrirmynd í íþróttasögu landsins.
Hún fæddist á Akureyri árið 1936 og hóf ung að æfa skautaíþróttir á tímum þegar aðstæður voru einfaldar og krefjandi þar sem ekki var búið að byggja skautahallir fyrir iðkendur.
Þrátt fyrir það náði Edda ótrúlegum árangri. Hún varð Íslandsmeistari aðeins um 15 ára gömul og setti Íslandsmet á árunum 1951, 1952 og 1953. Afrek hennar voru svo mikil að hún átti um tíma öll helstu Íslandsmet í skautahlaupi kvenna, standa öll hennar met enn í öllum helstu vegalengdum (500 m, 1500 m, 3000 m og 5000 m).
Íslandsmet hennar í 500 metra hlaupi var 60 sek, í 1000 metra hlaupi var 2:08,3 mín í 1500 metrum hljóp hún á 3:19,1 mín og í 3000 metrum á 7:12,4 mín
Á fyrsta Íslandsmótinu sínu, sem haldið var í Reykjavík, keppti hún í skautum sem hún fékk lánaða frá vini sínum og voru þeir tveimur númerum of stórir. Þurfti Edda að troða inn í þá bómull svo hún gæti skautað í þeim. En ekki dró það úr afrekum hennar því hún vann keppinaut sinn í bæði 500 m og 1500 m.
Edda var hluti af sterkri skautahefð á Akureyri og lagði sitt af mörkum til að byggja upp íþrótt sem hafði mikil áhrif á samfélagið. Hún sýndi að með dugnaði, kjarki og elju er hægt að ná langt, jafnvel við erfiðar aðstæður.
Saga Eddu minnir okkur á mikilvægi þess að fylgja draumum sínum – og að frumkvöðlar eins og hún leggja grunninn að því sem síðar verður að stórum árangri fyrir komandi kynslóðir.
Edda Sigurlaug Indriðadóttir er því ekki aðeins íþróttakona – hún er brautryðjandi.
