#skatingiceland
Skautasamband Íslands fær aðild að skautahlaups hluta ISU

Skautasamband Íslands fær aðild að skautahlaups hluta ISU

Skautasamband Íslands fær aðild að skautahlaupsdeild Alþjóða skautasambandsins

Fréttatilkynning
1. apríl 2026

Skautasamband Íslands hefur í dag fengið samþykkta aðild að skautahlaupsdeild Alþjóðaskautasambandsins (International Skating Union, ISU). Um er að ræða bráðabirgðaaðild (e. provisional membership), sem er hefðbundið fyrsta skref í aðildarferli nýrra sambanda.

Aðildin markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu skautahlaups á Íslandi og er afrakstur margra ára markvissrar vinnu. Uppbyggingin hefur verið unnin í nánu og öflugu samstarfi við aðildarfélög ÍSS, sem hafa lagt grunninn að starfsemi greinarinnar á Íslandi með metnaðarfullu starfi, þjálfun og þróun. Sá stuðningur og sú faglega vinna sem félögin hafa lagt af mörkum hefur verið lykilforsenda þess að þessi áfangi næðist.

Í ferlinu naut Skautasamband Íslands jafnframt dýrmæts stuðnings og samstarfs við önnur aðildarsambönd ISU, sem sambandið þakkar sérstaklega fyrir.

Með aðildinni skapast aukin tækifæri til þátttöku í alþjóðlegu starfi, keppnum og þróunarverkefnum á vegum ISU. Skautasamband Íslands leggur áherslu á að halda áfram nánu samstarfi við aðildarfélög sín og alþjóðlega samstarfsaðila með það að markmiði að efla íþróttina á landsvísu og byggja áfram á þeim sterka grunni sem þegar hefur verið lagður.

Í tilkynningu frá ISU segir meðal annars:

"We are pleased to inform you that during the Council Meeting held on 29 March 2026, the ISU Council has considered and accepted the application of the Icelandic Skating Association for Provisional ISU Membership for the Speed Skating Branch, with immediate effect.
This important milestone marks an exciting step forward for Speed Skating and Short Track in Iceland, and we warmly congratulate you and your team on this achievement.
We look forward to following the progress of your development plans and to building a strong and fruitful cooperation in the years ahead."

Skautasamband Íslands fagnar þessum mikilvæga áfanga og hlakkar til áframhaldandi uppbyggingar og samstarfs á alþjóðavettvangi.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Translate »