
JGP 2025
Junior Grand Prix mótaröðin (JGP) er svokallað kvótamót. Það þýðir að hver þjóð á rétt á ákveðnum fjölda keppenda á ákveðið mörgum mótum. Ísland á núna kvóta á tvö mót, einn keppanda á hvort mót.
Stjórn ÍSS, með astoð afreksnefndar, hefur tekið ákvörðun um það hvaða skautari hefur verið valinn sem fulltrúi Íslands á mótaröðinni.
Skautarinn sem hefur verið valinn til þátttöku á JGP árið 2025 er:
Sædís Heba Guðmundsdóttir, LSA
Mótin sem hún fékk úthlutað eru:
20. - 23. ágúst : Riga, Lettlandi
1. - 4. október : Gdansk, Póllandi