Til allra íslenskra þjálfara í listskautum og þeirra sem stefna á þjálfunarferil
Skautasamband Íslands kynnir með ánægju nýtt þjálfaranámskeið – Level 1, sem er hannað til að veita þjálfurum á Íslandi sterkan grunn í þjálfun listskauta og er í samræmi við menntunarviðmið Alþjóða skautasambandsins (ISU Coaching Education Framework). Námskeið verður upphafspunktur fyrir alla núverandi og framtíðar þjálfara og stuðlar að samræmi og fagmennsku í íþróttinni.
Yfirlit yfir námskeiðið
Þetta yfirgripsmikla námskeið spannar um 60 klukkustundir og nær yfir helstu þætti í þjálfun, þar á meðal:
– Grunnatriði í listskauta tækni og greiningu á hreyfigetu
– Þjálfun í hóptímum á ís fyrir byrjendur
– Skipulag hóptíma á ís
– Fagmennska í þjálfun
– Samskipti og tengslamyndun
– Kennsla og sýnikennsla á öllum stökum stökkum (þ.m.t. axel)
– Grunnpróf og framvinda
– Hæfni til að tryggja öryggi skautara og umhverfi þeirra m.a. með skilning á hættum og að geta veitt skyndihjálp
Tímalína námskeiðs (nákvæm dagskrá verður gefin út við upphaf námskeiðs)
– Skráningarfrestur: 20. Júní 2025
– Kynningarfundur og afhending námsgagna: lok júní (fjarnám)
– Bókleg kennsla: hefst í ágúst (fjarnám)
– Skriflegt próf: september (staðnám)
– Verkleg kennsla: haust (staðnám)
– Verknám: eftir að verklegri kennslu lýkur (staðnám í þeirri skautahöll sem hverjum og einum hentar best)
– Verklegt próf: desember/janúar (staðnám)
Skipulag námskeiðsins
Námskeiðið skiptist í fimm meginhluta:
1. Bóknám (fyrirlestrar)
2. Skriflegt próf (í eigin persónu)
Fram fer seint í ágúst eða snemma í september.
Ef nemandi fellur:
– Minniháttar vankantar: má taka upptökupróf fyrir eða samhliða verklegu prófi.
– Meiriháttar vankantar: heldur áfram í verklegan hluta, en þarf að endurtaka bókapróf síðar til að fá fullgilda vottun.
3. Verkleg kennsla á ís
Einblínt á hagnýta kennslu í grunnatriðum, þ.m.t. skautafærni, spinnar og stökk. Sérstök áhersla á að stýra hópi barna í skautaskóla.
4. Verknám (staðnám)
Þátttakendur aðstoða hjá skautafélögum undir leiðsögn reynds þjálfara.
Fer fram í desember eða janúar þar sem geta þín til að kenna, skipuleggja tíma og vinna með börnum er metin.
Full réttindi fást aðeins þegar bæði próf (skriflegt og verklegt) hafa verið staðin.
Fyrir hverja er námskeiðið?
1. Allir núverandi og fyrrum íslenska þjálfara:
– Þetta er nýr sameiginlegur grunnur fyrir alla þjálfara.
– Þjálfarar með fyrri réttindi fá námskeiðsgögn og eru hvattir til að sækja bóklega kennslu.
– Þurfa ekki að taka skriflegt próf, en verða að sýna fram á verklega færni.
2. Nýir þjálfarar:
– Einstaklingar 16 ára og eldri sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
– Verða a.m.k. 16 ára á árinu
– Hafa og geta sýnt færni í grunnatriðum í skautun
– Geta sýnt eða útskýrt stök stökk
– Vera með gilt skyndihjálparskírteini (eða taka námskeið samhliða)
– Hafa lokið ÍSÍ þjálfaranámskeiði Level 1 (eða ljúka því áður en námskeiði lýkur)
Réttindi og skilyrði til að viðhalda þjálfaraleyfi (fyrir öll þjálfarastig)
Þjálfarar hljóta réttindi til að þjálfa börn 12 ára og yngri eftir að hafa lokið námskeiðinu.
– Í félagalínu: í flokki 12 ára og yngri
– Í ÍSS-línu: í Chicks-flokki
– Í SO-línu: level 1, 2 og 3
Starfsskýrsla:
Þjálfarar skulu skila skýrslu árlega til þess að viðhalda réttindum sínum. Skýrslunni skal skila á þar til gerðu formi sem nálgast má á www.iceskate.is fyrir 30. júní ár hvert til Fræðslunefndar á education@iceskate.is. Sé skýrslunni ekki skilað innan tilskilins tíma verður svo á litið að þjálfari hafi verið óvirkur á líðandi tímabili.
Endurvirking réttinda sem fallið hafa úr gildi:
Réttindi falla úr gildi ef þjálfari hefur verið óvirkur í þrjú tímabil, réttindi tapast þó aldrei. Til þess að endurvirkja réttindi sem fallið hafa úr gildi skal sækja fund með ÍSS eða Fræðslunefnd til þess að fá upplýsingar um þær breytingar sem orðið hafa í fjarveru.
Endurmenntun:
Þjálfarar skulu sækja endurmenntun a.m.k. á tveggja tímabila fresti. ÍSS og/eða Fræðslunefnd leggur til og auglýsir þau verkefni sem teljast til endurmenntunar s.s. þátttaka í afreksbúðum, net námskeið og e-rink námskeið. Vilji þjálfari sækja endurmenntun sem ÍSS og/eða Fræðslunefnd hefur ekki boðið upp á skal hann sækja um staðfestingu til Fræðslunefndar um að slíkt verði talið til endurmenntunar.
Af hverju skiptir þetta máli?
Þetta nýja kerfi setur viðmið fyrir gæði og samræmi í þjálfun á Íslandi. Það tryggir að allir þjálfarar hafi þau verkfæri og þá þekkingu sem þarf til að styðja við uppbyggingu ungra skautara. Með sameiginlegu verklagi og reglulegri endurmenntun styrkjum við listskautaíþróttina til framtíðar.
Við hvetjum alla sem uppfylla skilyrðin til að taka þátt í þessu verkefni og vera hluti af uppbyggingu listskauta á Íslandi.