Norðurlandamótið 2024

Norðurlandamótið 2024

Júlía Sylvía með stigamet á Norðurlandamóti

Norðurlandamótið á listskautum fór fram 1. - 4. febrúar í Borås, í Svíþjóð.

Keppendur Íslands voru að þessu sinni sjö þær; Júlís Sylvía, Lena Rut, Freydís Jóna, Berglind Inga, Elín Katla, Katla Karítas og Sædís Heba.
Hluti hópsins var að keppa á sínu fyrsta Norðurlandamóti en þær fengu góðan stuðning frá sér reyndari liðsmönnum í ferðinni.
Með keppnishópnum fóru tveir þjálfarar, Benjamin Naggiar og Jana Omelinova, og einn liðsstjóri, Svava Hróðný Jónsdóttir. Auk þeirra voru tveir fulltrúar á dómara- og tæknipanel, María Fortescue og Halla Björg Sigurþórsdóttir.

Keppnis hófst á fimmtudegi með stuttu prógrammi hjá Advanced Novice Girls og Junior Women.
Katla Karítas Yngvadóttir var fyrsti keppandi íslenska hópins, en hún skautaði nr.2 í Advanced Novice á sínu fyrsta Norðurlandamóti. Fyrir stutta prógrammið fékk hún 24.64 stig og 17. sætið eftir daginn. Næst var það Elín Katla Sveinbjörnsdóttir, sem einnig var á sínu fyrsta Norðurlandamóti. Hún fékk 28.43 stig fyrir stutta prógrammið og 13. sætið eftir daginn. Þá var komið að Sædísi Hebu Guðmundsdóttur, en hún er reynsluboltinn í þessum keppnisflokki. Fyrir stutta prógrammið fékk hún 27.67 stig og 14. sætið eftir daginn. Síðasti íslenski keppandinn í flokknum var Berglind Inga Benediktsdóttir. Hún fékk 24.60 stig í stutta prógramminnu og 18. sætið eftir daginn, á sínu fyrsta Norðurlandamóti.

Junior Women kepptu svo síðar um daginn og átti Ísland tvo skautara í keppnisflokknum. Það var Lena Rut Ásgeirsdóttir sem var fyrr inn á ísinn og fékk hún 29.01 stig fyrir stutta prógrammið og 19. sætið eftir daginn. Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir var síðasti íslenski keppandi dagsins og fékk hún 30.03 stig fyrir stutta prógrammið og 18. sætið eftir daginn.

Á föstudegi er iðulega styttri keppnisdagur en aðra daga á Norðurlandamóti þar sem að um kvöldið fer fram svokallaður Official Dinner þar sem allir keppendur á mótinu ásamt þjálfurum, liðsstjórum, starfsfólki á dómarapanel ásamt skipuleggjendum mótsins hittast í skemmtilegum kvöldverði.
Þann keppnisdag voru því bara Advanced Novice stúlkurnar að keppa af íslenska hópnum og kepptu þær með frjálst prógram.
Berglind Inga var fyrst inn á ísinn af íslensku skauturunum og fékk hún fyrir frjálsa prógrammið 43.60 stig, það skilaði henni 68.20 í heildarstig og 18. sæti að lokum. Næst var það Katla Karítas, hún fékk 41.27 stig fyrir frjálsa prógrammið og samtals 65.91 í heildarstig og 19. sætið að lokum. Sædís Heba var næst og fékk hún 50.60 stig fyrir frjálsa prógrammið. Það gaf henni 78.27 í heildarstig og 15. sætið að lokum. Síðasti íslenski keppandi dagsins var Elín Katla. Hún fékk fyrir frjálsa prógrammið 48.89 stig og samtals 77.32 heildarstig og 16, sætið.

Á laugardegi var keppt með frjálst prógram í Junior flokkum og stutt prógram hjá Senior flokkum.
Lena Rut var fyrst inn á ísinn í frjálsu prógrammi í Junior og fékk hún 58.57 stig fyrir frjálsu æfingarnar sem gera samanlagt 87.58 í heidlarstig og 18. sætið samanlagt. Freydís Jóna Jing fékk 51.21 stig fyrir frjálsa prógrammið og 81.24 í heildarstig og 19. sætið samanlagt.

Í Senior flokki var Júlía Sylvía Gunnarsdóttir að keppa í fyrsta sinn á Norðurlandamóti í þeim keppnisflokki.
Fyrir stutta prógrammið fékk Júlía Sylvía 45.28 stig og 8. sætið eftir fyrri daginn.
Á sunnudegin var svo keppt með frjált prógram. Fyrir frjálsa prógrammið fékk hún 75.70 stig. Samanlagt fékk hún 120.98 stig og 9. sætið að lokum.
Þetta eru hæstu stig sem íslenskur skautari hefur fengið á Norðurlandamóti. Fyrra met átti Aldís Kara frá árinu 2022.

Að móti loknu fór fram sýning (e. Exhibition) þar sem skautaklúbburinn í bænum sá um sýningu og gesta skautarar sem keppt höfðu á Norðurlandamótinu tóku þátt. Júlía Sylvía fékk boð um að taka þátt í sýningunni og stóð hún sig frábærtlega þegar hún skautaði við útgáfu Kaleo af Vor í Vaglaskóg.

Við þökkum íslensku skauturunum fyrir þeirra frammistöðu og fylgjumst spennt með þeim á bæði Vormóti ÍSS og Sonja Henie Trophy í Osló í mars.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Translate »