María Frotescue fær alþjóðleg yfirdómararéttindi

María Frotescue fær alþjóðleg yfirdómararéttindi

Nú á dögunum lauk María Fortescue prófi hjá Alþjóða skautasambandinu, ISU, sem gaf henni réttindi sem alþjóðlegur yfirdómari (e. international referee).  Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur dómari tekur prófið og er María því fyrsti íslenski dómarinn sem fær réttindi sem alþjóðlegur yfirdómari.
María var fyrir með réttindi alþjóðlegs dómara en það er nauðsynlegur fyrirvari þess að fá yfirdómara réttindin.

Það er mjög jákvætt fyrir skautaíþróttir á Íslandi að eiga dómara og tæknifólk með alþjóðleg réttindi. Bæði eflir það íþróttina innanlands sem og það eykur sýnileika Íslands í alþjóðasamfélagi skautaíþrótta. Einnig er það mikill kostur fyrir íslenska skautara að hægt er að senda dómara og tæknifólk með þeim á alþjóðleg mót.

Skautasamband Íslands óskar Maríu innilega til hamingju með árangurinn. Hún er vel að þessu komin, en að baki liggur mikill undirbúningur sem og mikil vinna á mótum bæði innanlands og erlendis við það að afla sér nauðsynlegrar reynslu.

Translate »