Skautaþing 14.apríl 2018 – Fyrra fundarboð

Skautaþing 14.apríl 2018 – Fyrra fundarboð

19. skautaþing ÍSS, 14.apríl 2018

Þriðjudagur 6. mars 2018

Í samræmi við 6. grein laga ÍSS, er hér með boðað til 19. Skautaþings ÍSS.
Skautaþingið verður haldið laugardaginn 14. apríl í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal að Engjavegi 6, 104 Reykjavík og hefst kl. 11:00.

Tillögur sem óskast teknar fyrir á Skautaþingi, skulu hafa borist stjórn ÍSS minnst þremur vikum fyrir Skautaþing, þ.e. 24. mars nk.

Tilkynningar um framboð til stjórnar og varastjórnar ÍSS skulu berast kjörnefnd Skautaþings eigi síðar en tveimur vikum fyrir Skautaþing, þ.e. 31. mars nk.

Eigi síðar en tveimur vikum fyrir Skautaþing, þ.e. 31. mars nk., skal ÍSS senda aðilum dagskrá þingsins og tillögur sem borist hafa ásamt þeim tillögum sem ÍSS hyggst leggja fyrir þingið.

F.h. Skautasambands Íslands,
María Fortescue
Framkvæmdarstjóri ÍSS

Translate »