#skatingiceland
Jóna Szováti Þorsteinsdóttir keppir fyrir Ísland

Jóna Szováti Þorsteinsdóttir keppir fyrir Ísland

ÍSS fær nýjan fulltrúa í alþjóðlegt skautahlaup – Jóna Szováti Þorsteinsdóttir keppir fyrir Ísland

Skautasamband Íslands (ÍSS) hefur nýlega fengið aðild að skautahlaupshluta Alþjóðaskautasambandsins (ISU). Um er að ræða mikilvægt skref í uppbyggingu skautahlaups á Íslandi og opnar það ný tækifæri fyrir íþróttina hér á landi.

Uppbygging skautahlaups hefur verið í góðum farvegi og hefur starfsemin tekið jákvæðum framförum. Enn eru þó tækifæri til að efla starfið enn frekar, ekki síst með auknum aðgangi að ístímum sem myndu gera okkur kleift að byggja betur upp barna- og unglingastarf.

Samhliða þessari uppbyggingu hefur ÍSS fengið spennandi liðsstyrk. Jóna Þorsteinsdóttir, 15 ára íslensk skautakona búsett í Ungverjalandi, hefur ákveðið að keppa fyrir Íslands hönd í skautahlaupi.

Jóna hefur æft Short Track í Ungverjalandi í mörg ár og hefur þar öðlast dýrmæta reynslu í greininni. Hún heldur áfram að búa og æfa í Ungverjalandi með fjölskyldu sinni, en yngri systkini hennar stunda einnig skautahlaup.

Í haust skráði Jóna sig formlega í skautadeild Fjölnis og hefur þegar keppt á sínu fyrsta móti fyrir félagið. Næsta verkefni hennar er alþjóðlegt mót í lok nóvember þar sem hún mun keppa fyrir Íslands hönd í fyrsta skiptið.

Það er afar ánægjulegt að fá Jónu til liðs við íslenskt skautahlaup og spennandi verður að fylgjast með áframhaldandi vegferð hennar. Við erum stolt af því að hún hafi valið að keppa fyrir Ísland og hlökkum til að fylgjast með henni á komandi mótum.

Við óskum Jónu góðs gengis og hlökkum til að sjá íslenska fánann á lofti á alþjóðlegum skautahlaupsmótum!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Translate »