#skatingiceland
Vormót ÍSS 2026

Vormót ÍSS 2026

Metþátttaka á Vormóti ÍSS á Akureyri 2026

Vormót Skautasambands Íslands fór fram á Akureyri dagana 27.–29. mars við afar góðar aðstæður. Mótið markaði lok keppnistímabilsins og heppnaðist í alla staði mjög vel.

Metþátttaka var á mótinu en yfir 150 skautarar tóku þátt. Keppt var í öllum helstu línum sambandsins, þar á meðal ÍSS keppnislínu, félagalínu, Special Olympics (SO) og skautahlaupi. Fjölbreytni keppnisgreina og aldursflokka skapaði líflega og skemmtilega dagskrá alla mótsdagana.

Að loknu móti voru bikarmeistarar tímabilsins krýndir, sem setti hátíðlegan punkt yfir farsælt keppnisár.

Skautasamband Íslands vill færa öllum sjálfboðaliðum kærar þakkir fyrir þeirra framlag. Fjölbreytt og ómetanleg vinna þeirra var lykillinn að því hversu vel tókst til við framkvæmd mótsins.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Translate »