Norðurlandamótið 2026
Norðurlandamótið 2026 fór fram í Hvidøvre í Danmörku um síðustu helgi, 28. janúar - 1. febrúar.
Mótið fór vel fram og var skipulagið gott hjá Dönunum.
ÍSS átti sex keppendur á mótinu í flokkum Advanced Novice, Junior og Senior.
Auk þess voru tveir íslenskir fulltrúar á dómara- og tæknipanel mótsins.
Það voru skautararnir í Advanced Novice sem hófu keppni.
Þar kepptu þær Arna Dís Gísladóttir, Elín Katla Sveinbjörnsdóttir, Elysse Marie Alburo Mamalias og Ylfa Rún Guðmundsdóttir.
Ylfa Rún fékk 60.77 í heildarstig og hafnaði í 23. sæti. Elysse Marie fékk 65.87 í heildarstig og hafnaði í 22. sæti. Arna Dís fékk 71.55 stig og hafnaði í 20. sæti.
Elín Katla átti því miður ekki nógu góðan dag í stutta prógramminu og sat hún í 16. sæti eftir fyrri keppnisdaginn. Í Frjálsa voru æfingarnar að ganga upp hjá henni og var hún í 8. sæti þann daginn.
Samanlagt fékk Elín 96.53 stig og hafnaði í 12. sæti. Þrátt fyrir þetta náði Elín Katla með sínum heildarstigum þeim árangri að fá hæstu heildarstig sem íslenskur skautari hefur fengið í Advanced Novice flokki á Norðurlandamóti. Með því slær hún eigið met frá síðasta ári.
Í frjálsa prógramminu fékk hún 39,05 tæknistig en það eru hæstu tæknistig allra keppenda í frjálsa prógramminu í Advanced Novice þetta árið.
Sædís Heba Guðmundsdóttir keppti í Junior Women.
Sædís átti góðan dag í stutta prógramminu og sat í 11. sæti eftir þann dag. Í frjálsa prógramminu var ekki allt að ganga upp hjá henni og hafnaði hún í 15. sætinu þann dagnn. Samanlagt fékk hún 101.70 stig og endaði í 14. sæti.
Lena Rut Ásgeirsdóttir keppti í Senior Women.
Hún fékk 78.24 í heildarstig og hafnaði í 17. sæti.
Það voru ekki öll stökkin að ganga hjá henni, en spinarnir voru mjög stöðugir og fékk hún til að mynda Level 4 á alla spinna í stutta prógramminu.
Það er nóg að gera hjá skauturunum í landsliði ÍSS. Næsta mót er Sonja Henie Trophy sem fer fram í Oslo í byrjun mars.
Þangað til njótum við Ólympíuleikanna
