#skatingiceland
27. Skautaþing ÍSS

27. Skautaþing ÍSS

27. Skautaþing ÍSS haldið 9. maí

27. Skautaþing Skautasambands Íslands fór fram laugardaginn 9. maí sl. Þingið var vel sótt af aðildarfélögum sambandsins og fóru umræður fram í góðum anda.

Gestur frá Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sat jafnframt þingið. Kolbrún Sigurgeirsdóttir úr framkvæmdastjórn ÍSÍ flutti þinginu ávarp, skilaði kveðjum frá Willum Þór Þórsson og starfsfólki ÍSÍ og lýsti ánægju sinni með þá miklu grósku sem sjá má í starfi Skautasambands Ísland

Þingforseti var Valdimar Leó Friðriksson, okkur góðkunnur frá fyrri þingum, og stýrði hann þingstörfum af öryggi og fagmennsku.

Á þinginu voru teknar fyrir fjölmargar lagabreytingatillögur frá stjórn sambandsins sem gengu vel í gegnum umræðu og afgreiðslu. Jafnframt voru ársreikningur sambandsins og fjárhagsáætlun samþykkt. Uppfærð afreksstefna sambandsins var einnig lögð fram og samþykkt af þingfulltrúum.

Kosið var í stjórn sambandsins þar sem tveir aðalmenn og einn varamaður gáfu kost á sér áfram. Öll voru þau sjálfkjörin og halda því áfram störfum sínum í stjórn ÍSS.

Á þinginu færði Júlía Grétarsdóttir Skautasambandi Íslands veglega bókagjöf sem markar upphaf að skautabókasafni ÍSS. Fyrir hennar hönd afhenti móðir hennar, Þóra Gunnarsdóttir, gjöfina til formanns ÍSS, Svava Hróðný Jónsdóttir. Er þetta kærkomin viðbót við starfsemi sambandsins og spennandi upphaf að varðveislu þekkingar og sögu skautaíþróttarinnar innan ÍSS.

Við þinglok voru veitt heiðursverðlaun ÍSS. Silfurnæla sambandsins var afhent þeim Guðrún Brynjólfsdóttir og Katla Rún Ísfeld Erlendsdóttir fyrir þeirra framlag til skautahreyfingarinnar. Tækifærið var jafnframt nýtt til að bjóða þeim sem ekki höfðu átt kost á að vera viðstaddir fyrri afhendingu verðlaunanna að taka þátt í þessari stund. Það var ánægjulegt að fá fólk í hús og skapa gott tækifæri til samveru.

Á þinginu var einnig komið sérstaklega að tímamótum hjá skrifstofu sambandsins, þar sem María Fortescue mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri í sumar. Stjórn sambandsins þakkaði henni fyrir farsælt samstarf í gegnum árin og færði henni gjöf sem þakklætisvott fyrir mikilvægt framlag hennar til starfs sambandsins.

Skautasamband Íslands þakkar öllum þingfulltrúum og gestum fyrir vel heppnað þing og gott samstarf í áframhaldandi uppbyggingu skautaíþrótta á Íslandi.

-------------

Gögn frá 27. Skautaþingi ÍSS eru nú aðgengileg á vefsíðu ÍSS

Má þar nefna skýrslu stjórnar sem áhugavert er að skoða

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Translate »