Bikarmeistarar ÍSS 2023

Bikarmeistarar ÍSS 2023

Fjölnir, listskautadeild Bikarmeistarar ÍSS 2023

Í lok Vormóts ÍSS varð ljóst hvaða félag hreppti titilinn Bikarmeistarar ÍSS 2023.

Félög safna stigum á mótum ÍSS yfir keppnisveturinn og tekur efsti keppandi frá hverju félagi stig fyrir félag sitt sem eru svo lögð saman eftir veturinn. Það félag sem stendur uppi með flest stig er bikarmeistari.

Þegar búið var að skoða úrslit mótsins var ljóst að listskautadeild Fjölnis stóð uppi sem sigurvegari Bikarmótaraðar 2023 með 56 stig. Þetta er í fyrsta sinn sem Fjölnir fær bikarinn og mun nú varðveita hann í eitt ár.

Translate »