Aldís Kara Bergsdóttir með lágmörk fyrir Evrópumeistaramót í frjálsu prógrammi

Aldís Kara Bergsdóttir með lágmörk fyrir Evrópumeistaramót í frjálsu prógrammi

Aldís Kara Bergsdóttir náði, fyrst íslenskra skautara, lágmörkum fyrir Evrópumeistaramót í frjálsu prógrammi

Aldís Kara Bergsdóttir lauk keppni í dag á Nebelhorn Trophy sem fram fer í Oberstdorf í Þýskalandi.
Mótið á sér langa sögu og dregur árlega að sér marga þá fremstu í íþróttinni ásamt því að dómarar og tæknisérfræðingar/-stjórnendur mæta þangað til þess að endurnýja réttindi sín hjá Alþjóða skautasambandinu (ISU).
Þetta ár voru margir keppendur skráði til leiks í öllum greinum þar sem að um er að ræða síðasta mótið þar sem hægt er að vinna sér inn keppnisrétt á Ólympíuleikunum 2022.
Í kvennaflokki (Senior Women) hófu 37 skautarar keppni á fimmtudaginn var.
Byrjað er með stutt prógram, þar sem sýndar eru skylduæfingar.
Aldís Kara fór sterk af stað og sýndi góðar og öruggar æfingar. Sem skilaði sér í 21.98 tæknistigum og heildarstigum upp á 39.92 og 31. sætið. Þrátt fyrir að tvö stökk hafi ekki verið full snúin hjá henni var hún samt sem áður ekki nema um einu stigi frá lágmörkum sem þarf í stuttu prógrammi til keppni á Evrópumeistaramótinu.
Á laugardag hélt keppni áfram í kvennaflokki (Senior Women) með frjálst prógram. Keppt er í öfugri úrslitaröð frá fyrri keppnisdegi og var Aldís Kara sjöundi skautarinn inn á ísinn.
Aldís negldi hverst stökkið á fætur öðru og fékk há erfiðleikastig á snúninga og sporasamsettningu. Að launum fékk hún 41.50 tæknistig og heildarstig í frjálsu prógrammi 78.17 og 32. sætið þann daginn. Samanlögð heildarstig mótsins hjá henni eru 118.09 og 32. sætið.
Með 41.50 tæknistig í frjálsu prógrammi náði Aldís Kara lágmörkum sem þarf fyrir Evrópumeistaramót. (lágmarkið er 40.00 stig).
Hún er fyrsti íslenski skautarinn til þess að ná þessu markmiði.
Til þess að öðlast keppnisrétt á Evrópumeistaramóti þarf að ná lágmörkum í bæði stuttu prógrammi (23.00 stig) og frjálsu prógrammi (40.00 stig) á alþjóðlegu móti á lista ISU. Ekki þarf að ná lágmörkum fyrir bæði prógröm á sama móti og á því Aldís Kara bara eftir að ná stigunum í stuttu prógrammi.
Það er greinilegt að Aldís Kara á fullt inni og verður spennandi að fylgjast með henni á næstu alþjóðlegu mótum tímabilsins.
Næsta mót hjá henni er Finlandia Trophy sem fer fram í Espoo í Finnlandi 7.-11. október nk.
Translate »