Framboðsfrestur framlengdur

Framboðsfrestur framlengdur

Samkvæmt lögum ÍSS skal kjósa stjórn til tveggja ára. Á sléttu ártali skjal kjósa tvo aðalmenn og einn varamann. Hitt árið skal skjósa formann, tvo aðalmenn og einn varamann.
Um hæfi til stjórnarsetu er vísað í 7. grein laga ÍSS á heimasíðu, www.iceskate.is.

Á Skautaþingi 2021 verður því, skv. lögum ÍSS, kosið um formann, tvo aðalmenn og einn varamann til tveggja ára.

Framboðsfrestur rann út 10. apríl 2021. Ekki bárust nægileg framboð í stöðu varamanns og hefur Kjörnefnd ÍSS því framlengt framboðsfrestinn í þá stöðu til og með 20. apríl 2021. Framboðum skal skilað til kjörnefndar á netfangið kjornefnd@iceskate.is.

 

Kjörnefnd Skipa:

Formaður:
Hrafnhildur Guðjónsdóttir (LSA)
Nefndarmenn:
Helgi Páll Þórisson (Ösp)
Anna Gígja Kristjánsdóttir (SR)
Waleska Giraldo Þorsteinsson (Fjölnir)

Translate »