Ný stjórn ÍSS

Ný stjórn ÍSS

21. Skautaþing Skautasambands Íslands

Skautaþing ÍSS fór fram í húsnæði ÍSÍ við Engjaveg í Reykjavík þann 13.september 2020.
Fresta þurfti þinginu sem átti að fara fram á vormánuðum vegna COVID-19 og voru ýtrustu sóttvarnarreglur viðhafðar á þinginu núna.

Þingið var sett kl.11:30 af Guðbjörtu Erlendsdóttur og var Valdimar Leó Friðsiksson, formaður UMSK, kjörinn þingforseti. Þinggestir voru um 30 manns og mætti Viðar Garðarson, stjórnarmaður ÍSÍ, fyrir hönd ÍSÍ.
Fjárhagsáætlun, Afreksstefna og lagabreytingatillögur voru ræddar og samþykktar og nýir fulltrúar í stjórn voru kosnir.

Guðbjört Erlendsdóttir, fráfarandi formaður, gaf ekki kost á sér áfram. Nýr formaður var því kjörin Svava Hróðný Jónsdóttir en hún hefur gegnt stöðu varaformanns undanfarin 4 ár. Tvö sæti voru laus í aðalstjórn og voru tveir í framboði, þær María Fortescue og Þóra Sigríður Torfadóttir og voru þær því sjálfkjörnar. Fyrir í aðalstjórn voru Ingibjörg Pálsdóttir og Stefán Hjaltalín. Tveir voru í framboði um tvö sæti í varastjórn og voru því sjálfkjörnir Jóhanna Helga Þorkelsdóttir og Hulda Líf Harðardóttir.
Fráfarandi stjórnarmeðlimum fóru leystir út með blómum.

Þóra Gunnarsdóttir fékk viðurkenningu fyrir sjálfboðaliðastörf sín í þágu mótamála. Þóra var formaður mótanefndar sem og hún hefur unnið mikið starf við skipulagningu RIG og utanumhald um sjálfboðaliða á því móti. Mótanefnd ÍSS þakkar henni góð störf.

Fráfarandi formaður, Guðbjört Erlendsdóttir, var heiðruð með fyrsta gullmerki ÍSS. Guðbjört hefur unnið langt og merkilegt starf fyrir skautaíþróttina á sviði stjórnar- og dómarastarfa og er m.a. fyrsti alþjóðadómari Íslands. Henni er þakkað frábært og óeigingjarnt starf í þágu skautaíþrótta á Íslandi.

Þingi var slitið um kl.16:00.
Allt í allt góður dagur þar sem unnið var saman að uppbyggingu skautaíþrótta á Íslandi.

Translate »