Junior Grand Prix 2018

Junior Grand Prix 2018

Skautasamband Íslands hefur valið fulltrúa á JGP 2018

ISU Junior Grand Prix of Figure Skating er mótaröð sem hófst árið 1997. Mótaröðin samanstendur af sjö mótum og einu úrslitamóti (ISU Junior Grand Prix of Figure Skating Final). Á mótaröðinni keppa skautarar sem eru á hraðri uppleið í skautaheiminum og gefur skauturum sem eru á aldrinum 13 til 19 ára tækifæri til þess að keppa á háu getustigi alþjóðlega.

Stigakerfi sem byggir á úrslitum móta er notað til að ákvarða hverjir vinna sér inn þátttökurétt á úrslitamótinu. Sex keppendur í hverri keppnisgrein (einstaklings kvenna og karla, pör og ísdans) keppa til úrslita.

Öllum keppnum á mótaröðinni er streymt beint á Youtube rás mótaraðarinnar.

Stjórn Skautasambands Íslands hefur, í samvinnu við Afreksnefnd ÍSS, valið á tvo keppendur sem keppa fyrir Íslands hönd á JGP 2018. Ásamt því að tilnefna tvo varamenn sem undirbúa sig til jafns við keppendur ef til þess kemur að það þurfi að kalla þá til.

Þeir keppendur sem fara fyrir Íslands hönd eru:

Varamenn eru:

  • Emilía Rós Ómarsdóttir
  • Herdís Birna Hjaltalín

Stjórn ÍSS óskar þeim til hamingju og mun vera þeim innan handar í framhaldi af ákvörðuninni.

Translate »