Skautaþing 14.apríl 2018 – Seinna fundarboð

Skautaþing 14.apríl 2018 – Seinna fundarboð

19. skautaþing ÍSS, 14.apríl 2018

Fimmtudagur, 29.mars 2018

Í samræmi við 6.grein laga ÍSS er hér með sent út seinna fundarboð til 19. Skautaþings ÍSS sem haldið verður í Íþróttamiðstöðinni Laugardal þann 14.apríl nk. Þingið verður sett kl.11:00 og opnar móttaka kl.10:30.

Þingstaður: Þingið verður haldið í fundarsal E í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal að Engjavegi 6, 104 Reykjavík

Þingsetning: Þingsetning verður kl.11:00 en húsið opnar kl.10:30

Þinggögn: Þinggögn verða ekki prentuð út heldur verða þau send út einum sólahring áður en þingið hefst. Þingfulltrúar eru hvattir til að mæta með fartölvur/spjaldtölvur. Bent er á að það getur verið heppilegt að hlaða niður gögnum áður en til þings er haldið til að létta álagið á netinu á þingstað.

Dagskrá skv. 8.grein laga ÍSS
1. Þingsetning
2. Kosin þriggja manna kjörbréfanefnd
3. Kosning þingforseta
4. Kosning þingritara
5. Skýrsla stjórnar lögð fram
6. Endurskoðaðir reikningar sambandsins lagðir fram
7. Umræður og samþykkt reikninga
8. Ávarp gesta
9. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram
10. Kosning þingnefnda
11. Lagabreytingatillögur
12. Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði
13. Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem lögð hafa verið fyrir þingið ef þingmeirihluti leyfir
14. Nefndir starfa
15. Nefndir gera grein fyrir störfum sínum
16. Umræður um tillögur nefnda og atkvæðagreiðslur um þær
17. Kosning stjórnar ÍSS og varastjórnar, skv. 10.grein
18. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga
19. Þingslit

Translate »