Framboð til stjórnar Skautasambands Íslands

Framboð til stjórnar Skautasambands Íslands

Kjörnefnd ÍSS óskar eftir framboðum fyrir Skautaþing ÍSS 2020

Samkvæmt lögum ÍSS skal kjósa stjórn til tveggja ára. Á sléttu ártali skal kjósa formann, tvo aðalmenn og einn varamann. Hitt árið skal kjósa tvo aðalmenn og einn varamann.

Á skautaþingi 2020 verður því, skv. lögum ÍSS, kosið um formann, tvo aðalmenn og einn varamann til tveggja ára.

Um hæfi til stjórnarsetu er vísað í 7.grein laga ÍSS á heimasíðu www.iceskate.is

Framboðsfrestur rennur út 4.apríl 2020 og skal framboðum skilað til kjörnefndar, á netfangið info@iceskate.is

 

Kjörnefnd skipa:

Helgi Páll Þórisson - Skautadeild Aspar
Hrafnhildur Guðjónsdóttir– Skautafélag Akureyrar
Rakel Hákonardóttir – Fjölnir
Ólafur S.K. Þorvaldz - Skautafélag Reykjavíkur

Translate »