Skautasamband Íslands

Íslandsmót ÍSS 2021: Reglur um aðgengi

Reglur um aðgengi á mótsstað

Allir þátttakendur, starfsmenn, sjálfboðaliðar og gestir mótsins verða að sýna neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi við komu í skautahöllina.
Enginn samgangur er leyfður á milli svæða á mótsstað.

Keppendur, þjálfarar og sjálfboðaliðar

  • Inngangur er á hægri hlið hússins
  • Svæði: upphitunarsvæði, búningsklefar og keppnissvæði
  • Sýna neikvæða niðustöðu úr hraðprófi við komu
  • Það má ekki fara upp í stúku fyrr en að keppni í sínum keppnisflokki lýkur og verðlaunaafhending er yfirstaðin. Ef skautarar fara í áhorfendastúku geta þeir ekki farið aftur á keppnissvæði og verða því að taka allan sinn búnað með sér.

Dómarapanell

  • Inngangur er aftan við húsið, við hefil (Zamboni)
  • Svæði: dómarapanell og fundarherbergi/kaffiaðstaða fyrir ofan stúku
  • Boðið er upp á hressingu í lokuðum umbúðum
  • Sýna neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi við komu

Áhorfendur

  • Inngangur er við neyðarútgang vinsta megin við aðalinnganginn
  • Allir áhorfendur þurfa að vera búnir að skrá sig á þar til gerðu skráningarformi hér að neðan
  • Svæði: Stúkan upp að takmörkun við enda
  • Engin veitingasala er í húsinu
  • Sýna neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi við komu
Translate »